Læknisfræði
Sjúklingar með sykursýki af gerð 1, geta ekki sjálfir framleitt insúlín, sem stillir af sykurmagn í blóði. Ástæðan er sú að ónæmiskerfið hefur eyðilagt þær frumur í brisinu sem framleiða þetta efni. Nú hafa norður-amerískir og japanskir vísindamenn komist á snoðir um hvað veldur því að ónæmiskerfið gerir þessi mistök. Tilraunir þeirra sýna að ónæmiskerfið lítur á dauðar insúlínframleiðslufrumur sem óvinveittar og að það er ein ákveðin amínósýra í insúlíni sem kemur ónæmiskerfinu til að ráðast gegn þeim frumum sem framleiða insúlín.
Við tilraunirnar notuðu vísindamennirnir mýs með erfðagalla sem skapar þeim hættu á sykursýki. Við fæðingu eru músarungarnir heilbrigðir, en ónæmiskerfið ræðst á insúlínfrumurnar og stöðvar insúlínframleiðslu músanna. Insúlín er gert úr tveimur stuttum amínósýrukeðjum og vísindamennirnir komust að því að ef þeir breyttu aðeins einni amínósýru þróuðu mýsnar ekki sykursýki og insúlínið gat óheft stillt blóðsykurinn af.
Ef ónæmiskerfi manna lætur á sama hátt blekkjast af einni stakri amínósýru, getur þessi nýja uppgötvun reynst stórt skref í átt að lækningu á sykursýki.