Nýjar rannsóknir benda til að sólin sé alls ekki jafn stöðug og talið hefur verið. Fjöldi sólgosa hefur verið niðri í öldudal og kannski munu þau hverfa alveg um tíma. Þetta er vísbending um óþekkt ferli í iðrum sólar sem kunna að hafa mikil áhrif á loftslag jarðar.
Veturinn 2010 var óvenju kaldur í Norður-Evrópu. Margt bendir nú til að þetta hafi ekki verið tölfræðileg hending heldur að skýringuna megi leita til sólarinnar. Á þessu tímabili var virkni sólar óvenjulega lítil. Þessi litla virkni gæti hafa verkað á svonefndar vindrastir í heiðhvolfinu sem hafa hindrað milda vestanvinda að komast inn frá Atlantshafi, en þeir veita okkur tiltölulega mild vetrarveður. Þetta er álit Michael Lockwood við University of Reading en hann er prófessor í geimeðlisfræði. Rannsóknir hans benda til að sólin sé ekki jafn stöðug og talið hefur verið. Þetta sjónarmið styðja aðrar rannsóknir sem sýna að nokkrir þættir í virkni sólar geta sveiflast furðu mikið. Eitt greinilegt frávik felst í fjölda s Lesa meira
Enginn vafi leikur á að ís er að finna á Mars. Stjörnufræðingar geta beinlínis séð hvítan ísinn á pólunum þar sem hann liggur í margra metra lagi. En nú hefur geimkanninn Mars Reconnaissance Orbiter (MRO) einnig fundið ís nær miðbaug Mars á breiddargráðu sem hér á jörðu samsvarar suðurhluta Evrópu. Ísinn liggur mörg hundruð metra undir yfirborðinu á svæði Lesa meira
Norðurljósin, eins og við þekkjum þau, er einnig að finna á suðurhveli jarðar en þar kallast þau raunar suðurljós. Latneska heitið er aurora, en það var einmitt nafn rómversku dagrenningargyðjunnar, og myndir af henni minna mikið á litadýrðina sem við þekkjum af norðurljósunum. Norðurljósin myndast í kringum segulpólana þegar hlaðnar agnir frá sólu rekast á lofth Lesa meira
Obama Bandaríkjaforseti hefur háar hugmyndir um framtíð geimferða: „Árið 2025 vænti ég þess að við höfum í fyrsta sinn tilbúið geimskip sem ætlað er til að flytja menn um lengri veg en til tunglsins. Við byrjum á að láta menn lenda á stórum loftsteini í fyrsta sinn í sögunni. Upp úr 2030 geri ég ráð fyrir að við getum sent mannað geimfar á braut um Mars. Í kj Lesa meira
Þann 17. nóvember 1970 lenti rússneski tunglbíllinn Lunokhod 1 á tunglinu. Þetta var fyrsta vitvélin sem send var til annars hnattar og þessi litli, sjálfvirki bíll ferðaðist um á tunglinu og tók þar myndir í heilt ár, áður en sambandið við hann rofnaði. En sögu Lunokhods 1 reyndist ekki þar með lokið, því nú hefur hópi vísindamanna hjá Kaliforníuháskóla í San D Lesa meira
512 manns frá 38 löndum hafa farið út í geim. Til að teljast með, þarf maður að hafa farið í 100 km hæð. Lesa meira
Halastjörnum er gjarnan lýst sem skítugum íshnullungum. Í þeim er mikið af ís ásamt ýmsum öðrum efnum. Halastjörnurnar mynduðust þegar sólkerfið varð til fyrir meira en 4,5 milljörðum ára og ísinn hlýtur því að hafa verið til staðar við myndun sólkerfisins. Sólin og reikistjörnurnar mynduðust upphaflega úr risastóru skýi þar sem einkum var að finna vetni og Lesa meira
Hundruð glitrandi blárra stjarna, umvafðar glóandi heitum gasþokum. Þetta er það sem blasir við í stórri stjörnuverksmiðju, sem kallast R136, þegar skoðaðar eru nýjar og afar nákvæmar myndir frá geimsjónaukanum Hubble. R136 er að finna í svonefndri 30 Doradus-þoku sem er hluti af Stóra Magellan-skýinu en það er lítil stjörnuþoka á braut um Vetrarbrautina og í um Lesa meira
Ástæða þess að sumar stjörnuþokur eru spírallaga er sú að þær snúast. Hvernig þessi snúningur hefur orðið til, vitum við ekki, en það er þekkt í eðlisfræði að gasmassi sem snýst verður skífulaga þegar hann þéttist. Í spíralþoku er mest af ryki og gasi samankomið í tiltölulega þunnri skífu. Myndun nýrra stjarna á sér stað í skífunni og spíralarmarnir e Lesa meira
Hvað eiga lending geimfars á Títan og poki af kartöfluflögum sameiginlegt? Ekki neitt er auðvitað fyrsta svarið sem manni dettur í hug. Staðreyndin er þó sú að þýsku geimiðnaðarfyrirtæki tókst að tengja þetta tvennt saman. Hjá Hyperschall Technologie Göttingen starfa menn við það dagsdaglega að þróa stærðfræðilíkön um hegðun geimskipa við lendingu t.d. á Tít Lesa meira
Þann 19. júlí 2009 skall lítill himinhnöttur á Júpíter og skildi eftir sig nýjan, dökkan blett á þessari risareikistjörnu. Þegar bletturinn var sem stærstur samsvaraði hann um tvöföldu flatarmáli allra Bandaríkjanna. Svo öflugir árekstrar eru taldir afar sjaldgæfir og vísindamenn því hissa á að verða vitni að slíkum atburði aðeins 15 árum eftir að halastjarna Lesa meira