Þegar getnaðarvarnarpillur voru leyfðar sem getnaðarvörn í Bandaríkjunum árið 1960 var kynlíf á einu augabragði losað undan oki fjölgunarinnar. Kvenréttindakonur fögnuðu því að konur hefðu nú loks yfirráð yfir eigin líkömum en aðrar óttuðust að pillan myndi hafa í för með sér siðferðislega hnignun. Í dag er pillan nánast jafnalgeng og vítamín og er notuð af meira en 100 milljónum kvenna víðsvegar um heim.
Aðvörun: Þetta efni kemur í veg fyrir egglos. Þessa aðvörun var að finna á miðanum á litla, brúna pilluglasinu sem innihélt lyfið Enovid, sem kom á markað í Bandaríkjunum síðsumars árið 1957. Lyfið hafði nýverið hlotið samþykki yfirvalda í meðhöndlun á óreglulegum blæðingum og skyndilega fjölgaði þeim konum mjög verulega. Innan við tveimur árum eftir að Enovid kom á markað voru ríflega tvær milljónir kvenna farnar að nota lyfið. Það sem flestallar konurnar sóttust eftir var í raun ekki sjálft lyfið Enovid heldur aukaverkunin, þ.e. getnaðarvarnareiginleikinn. Fréttin um þennan aukalega ávinning af töflunum breiddist út eins og eldur í sinu, landshorna á milli, jafnvel þótt getnaðarvarnir væru mikið bannorð og notkun ge Lesa meira
Steingervingafræði. Í fyrsta sinn í sögunni geta vísindamenn og safngestir nú virt fyrir sér heila beinagrind Neandertalsmanns. Miklum fjölda fornra beina úr Neandertalsmönnum hefur verið safnað saman og þessi einstæða eftirgerð unnin á grundvelli þeirra. Beinagrindin er um 164 sm á hæð og gerð úr afsteypum af beinafundum í Evrópu og Mið-Austurlöndum. T.d. eru rifbei Lesa meira
Erfðavísindi Í fyrsta sinn hefur nú tekist að klóna kött. Kettlingurinn gengur undir nafninu cc, en skammstöfunin stendur fyrir “copy cat”. Að baki þessum áfanga standa vísindamenn við Texas A&M-háskólann í Bandaríkjunum. Í fyrstu tilraun var alls 82 genabreyttum eggjum komið fyrir í móðurlífi í alls sjö læðum. Aðeins eitt þessara eggja þróaðist á fósturstig Lesa meira
Naflastrengurinn gengur nú í endurnýjun lífdaga. Hingað til hlutverk hans einungis verið fólgið í því að sjá fóstrinu fyrir súrefni, næringu og öðrum lífsnauðsynjum. Eftir fæðinguna er hlutverki hans lokið, en nú verður breyting á því. Í framtíðinni verður naflastrengurinn áfram eins konar líflína, bæði fyrir börn og fullorðna. Í blóðinu í naflastrengnum Lesa meira
Tækni. Ísraelskir vísindamenn hafa nú þróað tölvu sem notar forrit, gerð með hjálp erfðaefnis. Tölvan notar erfðaefni einnig til samskipta við umheiminn. Tölvan sjálf – þ.e. “vélbúnaðurinn” – er gerð úr tveimur ensímum sem eru fær um að lesa upplýsingar DNA-strengs og vinna úr þeim. Þessi tölva er byggð úr lífrænum sameindum og minnsta útgáfa hennar Lesa meira
Erfðafræði Nú hafa kanadískir vísindamenn þróað genabreytt svín sem geta brotið niður umhverfisskaðleg fosföt í fæðunni. Vísindamennirnir bættu erfðavísi úr bakteríunni E. coli í svínin og þetta gen gerir það að verkum að svínin framleiða í munnavatnskirtlum sínum ensímið fytase. Þegar þetta efni er að finna í munnvatninu brýtur það niður fosföt í fæ Lesa meira
Okkur þykir vænt um hárið. Við greiðum það oft á dag, þvoum það vandlega úr sérstakri sápu, berum í það næringu og komum því í réttar stellingar með geli. Við látum líka krulla það, lita og klippa. En svo náin væntumþykja er sjaldnast vandræðalaus og hárið veldur okkur svo sannarlega líka miklum áhyggjum. Það getur átt til að detta af höfðinu, þar sem v Lesa meira
Líffræði Eitt af sjaldgæfustu trjám heims, Cupressus dupreziana, hefur þróað einstæða aðferð til að fjölga sér. Þar eð tré af þessari tegund eru aðeins 231 talsins, er eðlilega nokkuð langt á milli þeirra og frjóvgun því erfið. Nú sýna nýjar rannsóknir að frjókorn trésins lenda einnig á kvenblómum skylds og mun algengara trés, Cupressus sempervirens. Hér þ Lesa meira
Líffræði. Með gervifrjóvgun má auka fjölbreytni erfðavísanna meðal háhyrninga sem eru í vörslu manna og forðast skyldleikaræktun. Nú hefur fyrsta skrefið verið tekið og fyrsti háhyrningurinn sem verður til með þessari aðferð er kominn í heiminn. Móðirin er í sjávardýrasafninu SeaWorld í Kaliforníu og egg hennar var frjóvgað með sæði úr karldýri sem var Lesa meira