Löngu er vitað að Leonardo Da Vinci var framúrskarandi málari. En hann kemur ennþá vísindamönnum á óvart. Þegar franskir fræðimenn rannsökuðu nýlega frægasta málverk hans, Monu Lisu, með þróaðri röntgentækni kom í ljós nánast óskiljanlega fáguð málaratækni með svonefndu röntgen-flúrljómunar-rófi sem sérfræðingar við m.a. evrópsku geislunarstofnunina nærri borginni Grenoble framkvæmdu. Við rannsóknina kom í ljós að Da Vinci nýtti allt að 40 mismunandi örþunn lög af málningu til að skapa hið fræga bros Monu Lisu. Hvert lag er milli einn og tveir míkrómetrar á þykkt sem er 50 sinnum þynnra en mannshár. Samanlögð þykkt laganna er sjaldnast meira en 30 – 40 míkrómetrar. Innihald hvers lags af litarefnum, olíu og trják Lesa meira
Enginn veit fyrir víst hvaðan hjartalögunin, sem notuð er í tengslum við ást og rómantík, er fengin. Stílfærða og táknræna hjartað líkist líffærinu hjarta aðeins að mjög óverulegu leyti. Bogana tvo, sem eru svo mjög einkennandi efst á rómantísku hjörtunum, er sem dæmi ekki að finna í hjartanu sem slær í líkömum vorum en hins vegar minna þeir allmikið á kvenlega Lesa meira
Meðal þekktustu orða sögunnar eru þau sem blaðamaðurinn Henry Stanley sagði þegar hann fann hinn týnda kristniboða David Livingstone í núverandi Tanzaníu árið 1871: „Dr. Livingstone, I presume?“ Veikburða og sjúkdómshrjáður svaraði Livingstone játandi og lyfti slitinni, blárri húfunni. Hvort orðin eru nákvæmlega rétt eftir höfð er reyndar ekki vitað, en húfan h Lesa meira
Rafmagnstækin héldu fyrir alvöru innreið sína á heimilin upp úr miðri 20. öld og þá einkum til að létta húsmæðrum heimilisstörfin. Þess auglýsing er frá því upp úr 1960 og sýnir hversu glöð frúin verður ef eiginmaðurinn bara gefur henni hrærivél af merkinu „Chef“. Svo glöð verður konan yfir gjöf bónda síns að hún hefur á augabragði töfrað fram alls ky Lesa meira
Frá þeirri stundu þegar Bessie Coleman sá flugsýningu í fyrsta sinn, var hún gagntekin. Hún ætlaði að verða flugmaður. Að vísu var hún hið tíunda af þrettán börnum fátækra foreldra í Texas og 23 ára þurfti hún að flytja til Chicago til að vinna fyrir daglegu viðurværi. Það var árið 1915. En draumurinn lifði áfram innra með henni. Einn eldri bræðra hennar hva Lesa meira
Eftir meira en 60 ár á hafsbotni er ástralska sjúkraskipið Centaur nú komið í leitirnar á rúmlega 2 km dýpi. Japanskur kafbátur sökkti skipinu með tundurskeyti þann 14. maí 1943 út af Brisbane í Ástralíu og af 332 um borð lifðu aðeins 64 af, meðal þeirra ein af 12 hjúkrunarkonum. Síðan seinni heimsstyrjöldinni lauk hafa ýmsar tilraunir verið gerðar til að finna Lesa meira
Hellaristur í Skandinavíu voru einkum gerðar af bronsaldarmönnum á árabilinu 2000-500 f.Kr. Heilabú þeirra var nákvæmlega jafn þroskað og hjá núlifandi mönnum. Ástæða þess að myndirnar skuli ekki vera vandaðri og eðlilegri er sem sagt ekki skortur á hæfileikum, heldur fremur sú að heimsmynd þessa fólks hafi verið önnur en okkar. Miklu eldri hellamálverk t.d. Lascaux Lesa meira
Vísindi Vesturlanda munu breyta Indlandi. Þetta var viðkvæðið í auglýsingum Union Carbide um 1960. Og forsvarsmenn þessa efnaiðnaðarfyrirtækis reyndust hafa rétt fyrir sér. Union Carbide var fyrst bandarískra stórfyrirtækja til að koma undir sig fótunum á Indlandi og 1984 átti það sök á versta umhverfisslysi sögunnar. Í skodýraeiturverksmiðjunni í Bhopal, skammt frá Lesa meira
Tiananmen-torg, Torg hins himneska friðar í Beijing er 440.000 fermetrar og þar með opinberlega stærsta torg í heimi. Flatarmálið getur eftir atvikum samsvarað um 50 fótboltavöllum. Ný torg í öðrum kínverskum borgum veita þó samkeppni. Í kínverskum borgum eru menn víða að endurreisa stórfenglegar stjórnarbyggingar, hallir og minnismerki. Tiananmen-torg á uppruna sinn um m Lesa meira
Enskir sölumenn, sem gengu í hús, gátu þurft að grípa til þess ráðs að hrópa hátt og hringja með bjöllum ef þeir vildu losna við varning sinn. Samkeppnin var hörð, því götusölum fjölgaði gífurlega í hinum vestræna heimi. Allar götur frá því kringum 1800 þyrptust farandsölumenn út á götur og stræti til að losna við fjöldaframleiddan varning iðnríkisins og Lesa meira
Börn þarf að þvo hvort sem þau vilja eður ei! Rétt fyrir aldamótin 1900 auglýsti sápuframleiðandinn Pears’ Soap fyrstu gegnsæju sápu í heimi, sem varð fljótt mjög vinsæl meðal ríka fólksins. Áður en hér var komið sögu hafði fólk þurft að þvo sér með sterkum efnum, en sápur innihéldu áður fyrr bæði arseník og blý. Andrew Pears notaði á hinn bóginn einun Lesa meira