Fylgstu með okkur á Twitter Sjáumst á FaceBook Gerast áskrifandi

Forsöguleg dýr og steingervingafræði

Nýjasta greinin
Gráðugur drápshvalur réði ríkjum í höfum fortíðar

Til þessa óþekktur hvalur með ginið fullt af allt að 36 sm löngum tönnum

Eitt stærsta rándýr í sögu heims er nú fundið í Perú. Risavaxinn hvalur með ógnvænlegar tennur. Fræðimenn hafa nefnt risann Leviathan melvillei til heiðurs rithöfundinum Hermann Melville sem árið 1951 skrifaði hina heimsfrægu sögu „Moby Dick“ um eltingarleikinn við hinn skelfilega hvíta búrhval. Beinagrindin er 12 – 13 milljón ára gömul og Oliver Lambert við Institut Royal des Senses Naturelles de Belgique í Brussell, Belgíu, segir drápshval þennan hafi barist við 15 m langan hákarl, Megalodon, um yfirráð í heimshöfunum. Feiknarlegir kjálkar fornhvalsins voru alsettir allt að 36 sm löngum tönnum og því var Leviathan melvillei með eitthvert ógnvænlegasta gin sögunnar. Með því gat hann skjótt flensað stærðarinnar bráð í smá Lesa meira

Greinalisti

220 milljón ár - og enn í toppformi

Krókódílar leyndust undir eyðimerkursandinum. Sahara geymir steingervinga af furðulegustu krókódílategundum. Háfættir krókódílar með fæturna lóðrétt undan líkamanum eins og spendýr er ein þeirra tegunda sem líkist hreint ekki þeim krókódílum sem við þekkjum nú á dögum. Frá 1997 hefur teymi vísindamanna leitt af bandaríska steingervingafræðingnum Paul Serrano r Lesa meira

ARDI sýnir okkur hver við vorum

Hvaðan komum við? Menn hafa alltaf verið hugfangnir af þessari spurningu og með uppgötvun Ardis hafa vísindamenn komist einu skrefi nær svarinu. „Þetta er það sem við höfum komist næst því að finna síðasta sameiginlega forföður manna og simpansa,“ segir steingervingafræðingurinn Tim White sem er einn af forystumönnum Mið-Awash-verkefnisins, sem nú hefur verið unnið Lesa meira

Eðlukjálki afhjúpar átvenjur

Elfting gæti hafa verið á matseðlinum hjá eðlum af ættinni Hadrosaurus í síðari hluta krítartímans, fyrir um 67 milljón árum. Þetta segja nú vísindamenn við Leicesterháskóla í Englandi, en þeir hafa rannsakað kjálkasteingerving frá Kanada í rafeindasmásjá. Greining leiðir í ljós fíngerðar rispur, líklega eftir sandkorn. Það bendir til að dýrið hafi étið pl Lesa meira

Ný flugeðla fyllir upp í gat

Í Kína hafa nú verið grafnar upp allmargar næstum heilar beinagrindur af áður óþekktri flugeðlu sem uppi hefur verið fyrir um 160 milljónum ára. Eðlurnar fundust í Liaoning-héraði af steingervingafræðingum, m.a. hjá kínversku jarðfræðivísindaakademíunni í Beijing og hafa fengið tegundarheitið Darwinopterus modularis. Flugeðlur, eða petrosaurus-eðlur, voru náskylda Lesa meira

Loftslagsbreytingar drápu loðfílana

Kafloðnir mammútar, eða loðfílar, höfðust við á sléttum Norður-Ameríku miklu lengur en talið hefur verið. Þetta sýna rannsóknir á DNA-sameindum sem varðveist hafa í sífreranum í Alaska. Í meira en 100 ár hafa menn deilt um ástæður þess að loðfílar og fleiri stórvaxnar dýrategundir dóu út í lok ísaldar. Á tiltölulega skömmum tíma hurfu um tveir þriðju a Lesa meira

Stór risaeðluspor finnast í Frakklandi

1,5 metrar í þvermál. Svo stór eru allmörg fótspor eftir risaeðlur sem tveir franskir áhugamenn hafa nú fundið í grennd við Lyon. Marie-Hélene Marcaud og Patrice Landry eru félagar í vísindafélagi og meðlimirnir hafa lengi leitað að sporum á svæðinu. Og á gönguferð á síðasta ári höfðu þau heppnina með sér. Marcaud og Landry kölluðu strax til sérfræðinga f Lesa meira

Fuglar glötuðu þumlinum

Lítill fingurköggull úr nýfundnum steingervingi styður þá kenningu að fuglar séu komnir af forneðlum. Beinið er úr eðlu sem verið hefur keimlík strúti og kallast Limusaurus inextricabilis og sýnir að þumalfingurinn hefur verið að hverfa. Í vængjum fugla er ekkert bein samsvarandi þumli, heldur aðeins vísifingri, löngutöng og baugfingri."" Lesa meira

Grameðlan óx af lítilli eðlu

125 milljón ára forneðla sem fundist hefur í Kína varpar alveg nýju ljósi á drottningu risaeðlanna, grameðluna, eða Tyrannosaurus rex, sem var óhugnanlega stórvaxin kjötæta. Steingervingafræðingurinn Paul Sereno, ásamt kínverskum kollegum sínum, hefur nú afhjúpað næstum alheila vasaútgáfu af grameðlu. Þessi eðla er greinilega forveri Tyrannousaurus rex og hefur fengið Lesa meira

Heilabú manna stækkaði á ísöld

Heilabú frummanna fór skyndilega stækkandi þegar kólnaði í veðri og það var þá sem forfeður okkar þróuðust og urðu að Homo sapiens, hinum viti borna manni. Fyrir 2,5 milljónum ára voru aðstæður nákvæmlega réttar og leiddu til stækkunar heilans, segja vísindamenn hjá Howard-háskóla í Washington DC og Max Planck-lífefnastofnuninni í Jena. Fram að þessum tíma v Lesa meira

Steingerður, tröllvaxinn sjófugl fannst í Perú

Best varðveitta hauskúpa sem fundist hefur af Pelagornthidae-fugli, ætt mjög stórra sjófugla sem uppi var á tímabilinu fyrir 50 – 2,5 milljón árum, hefur nú fundist í Perú. Þetta nýjasta eintak er um 10 milljón ára. Hauskúpan er 40 sm löng og vænghafið hefur verið allt að 6 metrar. Flugtakið hefur ekki verið sérlega tignarlegt, segir Mario Urbina, steingervingafræð Lesa meira

GREIN 1 - 10 AF 38 GREINUM SÍÐA:   1 2 3 4
Áhugaverðar greinar
Þemagreinar

150 ára barátta við Everest

Manninn hefur lengið langað til að stíga á topp hæsta fjalls heims. Leiðin er hin lengsta og mannskæðasta sem menn hafa tekist á við. Hún hefst með mælingum Breta á miðri 19. öld en það er ekki fyrr en upp úr 1920 sem þeir eru reiðubúnir að reyna við tindinn í fyrsta sinn.

Lifandi Vísindi birti fjórar stórar greinar um merkustu leiðangrana á toppinn: Þann fyrsta, sem því miður misttókst, þann sem tókst, þegar Edmund Hillary sté á tindinn, þann sem Reinhold Messner fór einsamall og svo um árið 1996, sem var þakið slysum.

Everest #tab1
Hnattrænar #tab2
Apollo #tab3
Auglýsing
ELÍSA GUDRÚN EHF. - Útgáfufélag Lifandi Vísinda
  • Klapparstígur 25
  • 101 Reykjavík
  • Sími: 570-8300
  • Opnunartími: 9 - 12 alla virka daga
  • lifandi@visindi.is
Höfundarréttur: isProject ehf. © 2010. Allur réttur áskilinn.