Fylgstu með okkur á Twitter Sjáumst á FaceBook Gerast áskrifandi

Framandi staðir

Nýjasta greinin
Lónið hverfur á þremur dögum!

Merzbacher lónið í Tien Shan fjöllunum í Kirgistan myndast úr leysingavatni. Á hverju sumri hverfur vatnið á innan við þremur sólarhringum. Vísindamenn fýsir að komast að raun um hvað veldur.

Á sama tíma ár hvert myndast furðulegt fyrirbæri á landamærum Kirgistan, Kasakstan og Kína en um er að ræða Merzbacher lónið sem myndast úr leysingavatni frá jökli sem kallast Inylchek. Þegar lónið nær hámarki sínu tæmist það skyndilega og meira en 250 rúmmetrar vatns streyma úr því á örfáum dögum. Vatnið rennur undir ísstíflu, sem haldið hafði lóninu í skefjum, og streymir frá jökulsporðinum. Vatnið veldur flóðum í dal einum um nokkurra daga skeið og mörg hundruð kílómetra löngu ferðalagi þess lýkur svo endanlega í Taklamakan eyðimörkinni. Lón, sem tæmast jafn skyndilega og þetta, eru þekkt fyrirbæri á svæðum þar sem jöklar fyrirfinnast. Þessi vatnsflaumur sem minnir einna helst á syndaflóðið forðum er það sem vi Lesa meira

Greinalisti

Stærsta hellakerfi heims – heldur áfram að vaxa

Skyndilega heyrir Hugh St. Lawrence í rennandi vatni fyrir neðan sig. Hann getur ekki séð hvað veldur hljóðinu. En eitt er hann viss um: vatn í slíku magni er annað hvort foss eða fljót og hann verður afar spenntur. Þessi reyndi hellakönnuður er ásamt þremur kollegum sínum í ensk-malasíska Mulu Caves 2009 Expedition að rannsaka White Rock Cave sem er eitt af stærri hella Lesa meira

Hvaða torg er stærst á hnettinum öllum?

Tiananmen-torg, Torg hins himneska friðar í Beijing er 440.000 fermetrar og þar með opinberlega stærsta torg í heimi. Flatarmálið getur eftir atvikum samsvarað um 50 fótboltavöllum. Ný torg í öðrum kínverskum borgum veita þó samkeppni. Í kínverskum borgum eru menn víða að endurreisa stórfenglegar stjórnarbyggingar, hallir og minnismerki. Tiananmen-torg á uppruna sinn um m Lesa meira

Afríska útgáfan af Galapagos eyjum

Tíminn stendur í stað á Socotra. Allar götur frá því að eyjan losnaði frá meginlandi Afríku fyrir 30 milljón árum, líkt og gerðist með Galapagos eyjar í Kyrrahafinu, hefur eyjan verið í eins konar tímalegu tómarúmi og henni mátt eiginlega líkja við rannsóknarstofu í þróunfræðilegum rannsóknum. Alls 37 hundraðshlutar af þeim 825 plöntutegundum sem lifa á eynni e Lesa meira

Leirinn lífgjafi moskunnar

Allir hjálpast að við að strjúka leirnum á moskuna. Í fjóra klukkutíma leggja allir íbúarnir sig alla fram. Bærinn Djenné í Malí er ævagamall og stendur á mótum fljótanna Níger og Bani. Fljótin mynda frumskilyrði fyrir tilvist bæjarins. Þau sjá fólki og húsdýrum fyrir vatni og úr þeim er líka veitt vatni á akrana. Fljótin eru líka flutningaleiðir til nágranna Lesa meira

Ferðin að miðju Jarðar

Harðgert könnunarfar David Stevenson leggur til að sprengd verði 300 – 1000 metra djúp sprunga í yfirborð Jarðar. Sprungan þarf að vera milli 10 cm og 1 m breið og allt að 1000 metra löng. Þessu næst er sprungan fyllt með bráðnu járni sem mun þrýsta á botn sprungunnar með slíkum krafti að járnið tekur að renna dýpra og dýpra í átt að kjarna Jarðar. Um leið og Lesa meira

Er hægt að sigla á norðurpólinn?

Það er aldagamall draumur manna að sigla alla leið til norðurpólsins og fjölmargar tilraunir hafa verið gerðar til þess. Engar þeirra báru þó árangur fyrr en 1977 þegar Sovétmenn komust þangað á kjarnorkuknúna ísbrjótnum Arktika, sem var sérstaklega styrktur. Eftir að hafa plægt sig í gegnum þykka ísbreiðu náði ísbrjóturinn alla leið á hinn landfræðilega norð Lesa meira

Áður óþekkt djúp í hafinu

Jarðfræði Áður var aðeins Challengergjáin en nú kemur HMRG-gjáin til sögunnar. Það eru vísindamenn við Hawaii Institute of Geophysics Planetology sem nú hafa uppgötvað djúpa gjá á hafsbotni - gjá sem fyllilega stenst samanburð við Challengergjána. dýpstu gjá heimshafanna, sem nær niður á 11 km dýpi. Rétt eins og Challengergjáin er HMRG-gjáin í Marianerdjúpi sem Lesa meira

GREIN 1 - 7 AF 7 GREINUM SÍÐA:   1
Áhugaverðar greinar
Þemagreinar

150 ára barátta við Everest

Manninn hefur lengið langað til að stíga á topp hæsta fjalls heims. Leiðin er hin lengsta og mannskæðasta sem menn hafa tekist á við. Hún hefst með mælingum Breta á miðri 19. öld en það er ekki fyrr en upp úr 1920 sem þeir eru reiðubúnir að reyna við tindinn í fyrsta sinn.

Lifandi Vísindi birti fjórar stórar greinar um merkustu leiðangrana á toppinn: Þann fyrsta, sem því miður misttókst, þann sem tókst, þegar Edmund Hillary sté á tindinn, þann sem Reinhold Messner fór einsamall og svo um árið 1996, sem var þakið slysum.

Everest #tab1
Hnattrænar #tab2
Apollo #tab3
Auglýsing
ELÍSA GUDRÚN EHF. - Útgáfufélag Lifandi Vísinda
  • Klapparstígur 25
  • 101 Reykjavík
  • Sími: 570-8300
  • Opnunartími: 9 - 12 alla virka daga
  • lifandi@visindi.is
Höfundarréttur: isProject ehf. © 2010. Allur réttur áskilinn.