Fylgstu með okkur á Twitter Sjáumst á FaceBook Gerast áskrifandi

Fyrirbæri

Nýjasta greinin
Flugfreyja lifði af 10 kílómetra hrap

Flugfreyjan Vesna Vulovic átti eiginlega ekki að vera í vinnu þann 26. janúar 1972. Þessi 22 ára serbneska kona var kölluð út í misgripum í stað nöfnu sinnar og var þess vegna ein af 28 manns um borð í DC-9-flugvél á leið frá Kaupmannahöfn til Belgrad, þegar sprenging varð í vélinni í 10 km hæð yfir Tékkóslóvakíu. Í snævi þöktu skóglendi í fjallshlíðinni þar sem flakhlutarnir komu niður blasti óhugnanleg sjón við fólki úr nágrenninu sem fyrst kom á vettvang. Limlest og hroðalega útleikin lík lágu á víð og dreif. Öll von um að finna nokkurn á lífi virtist strax úti. En svo heyrðu menn dauft kvein frá líkama í bláum einkennisbúningi. Fætur konunnar stóðu út úr rjúkandi vélarskrokknum og ofan á henni lá lík. Vesn Lesa meira

Greinalisti

Eldspýtur gáfu eld djöfulsins

Árið 1827 varð efnafræðingurinn John Walker fyrstur til að selja hinar hefðbundnu strokeldspýtur. Það reyndist þó erfiðleikum bundið að fá logann stöðugan og á sumum eldspýtum kviknaði með talsverðri sprengingu. Lyktin minnti auk þess á brunnar rakettur og eldspýturnar voru seldar undir nafninu „Lucifers“. Lesa meira

Dularfullt fóstur 23 ára gamalt

Faðir Babilart var ástríðusafnari. Heimili hans í franska þorpinu Pont-a-Mousson var sneisafullt af furðulegustu fyrirbærum og fólk streymdi þangað um langan veg til að dást að þessum merkilegu gripum. Árið 1678 komu Maria Theresia Frakklandsdrottning og hirðlæknirinn Pierre Dionis í heimsókn. Faðir Babilart vildi ákafur sýna þeim perluna í safni sínu, sprittkrukku með Lesa meira

Hvernig myndast klappir með steini ofan á?

Sums staðar í heiminum má sjá þessi furðulegu fyrirbæri: stórar klapparsúlur þar sem engu er líkara en einhver hafi vandað sig við að koma fyrir stórum steini uppi á toppnum. Einkanlega í Bandaríkjunum er að finna klettalandslag þar sem slíkar súlur standa, t.d. í Bryce-gili í Utah. Klapparsúlur af þessu tagi hafa myndast við veðrun. Vatn hefur náð að grafa sig ni Lesa meira

Lentu í risaflóðbylgju á litlum báti og lifðu af

Ásamt 7 ára syni sínum var Howard Ulrich að renna fyrir fiski á Liuya-flóa við Alaska þann 9. júlí 1958. Um níuleytið um kvöldið heyrðist ógnarlegur hávaði, þegar jarðskjálfti olli mikilli skriðu í fjallshlíð við ströndina. Meira en 30 milljón rúmmetrar af klöpp og grjóti þeyttust niður í hafið úr allt að 1.000 metra hæð. Augnabliki síðar reið risastór fl Lesa meira

Sofandi kona verður fyrir loftstein

Sum slys eru fáránleg. Önnur alls ólíkleg og einmitt slíkt slys átti sér stað þriðjudaginn 30. nóvember 1954 og gerði bandaríska konu svo víðfræga að blaðamenn sátu um hús hennar í marga daga. Þetta furðulega óhapp átti sér stað um hádegisbilið þegar Ann Hodges hugðist leggja sig í smástund. Hún vaknaði við mikinn hávaða og fann fyrir verkjum í mjöðmin Lesa meira

Af hverju er ekki hættulegt að búa í Hírósíma?

Geislunin frá sprengjunum yfir Hírósíma og Nagasakí 1945 varð mörgum að bana en tiltölulega lítil geislavirkni varð þó eftir. Ástæðan er sú að mest var af gammageislun sem hverfur fremur hratt. Um 10% var nifteindageislun sem getur valdið geislavirkni í efnum og um leið skilið geislavirkni eftir á svæðinu. En 80% af þeirri geislun hvarf þó strax á fyrsta sólarhringnum Lesa meira

Stærstu teikningar veraldar

Vinnuhlé geta verið til margra hluta nytsamleg - jafnvel nýst til meiri háttar uppgötvana. Þetta sannaðist á tveimur aðstoðarmönnum við fornleifauppgröft við Cantallo skammt frá Nazca-sléttunni dag einn í september 1926. Þeir nýttu sér vinnuhléið til að klifra upp á hæð í nágrenninu og njóta útsýnisins yfir eyðisléttuna. Sjálfum sér - og yfirmanninum Julio Tello Lesa meira

Er hægt að skýra undarlegar tilviljanir?

Flestir kannast vafalaust við að verða skyndilega hugsað til einhvers eða einhverrar sem maður hefur ekki hitt eða heyrt frá í mörg ár og rekast svo á viðkomandi á næsta götuhorni.Séð frá almennu vísindalegu sjónarhorni er ekkert sérstaklega merkilegt við þetta. Svo margir og margvíslegir atburðir gerast í lífi okkar allra á hverjum degi að einhverjir þeirra hljóta Lesa meira

Hvaðan kemur páskahérinn?

Páskahérans varð fyrst vart í Heidelberg í Þýskalandi í lok 17. aldar, en hérar og kanínur voru á hinn bóginn vel þekkt tákn frjósemi og spírandi lífs á vorhátíðum í fornum trúarbrögðum. Þýskir vesturfarar tóku siðinn með sér til Bandaríkjanna þar sem hann náði miklum vinsældum upp úr miðri 19. öld. Smám saman fór páskahérinn að færa börnum sætindi og Lesa meira

GREIN 1 - 9 AF 9 GREINUM SÍÐA:   1
Áhugaverðar greinar
Þemagreinar

150 ára barátta við Everest

Manninn hefur lengið langað til að stíga á topp hæsta fjalls heims. Leiðin er hin lengsta og mannskæðasta sem menn hafa tekist á við. Hún hefst með mælingum Breta á miðri 19. öld en það er ekki fyrr en upp úr 1920 sem þeir eru reiðubúnir að reyna við tindinn í fyrsta sinn.

Lifandi Vísindi birti fjórar stórar greinar um merkustu leiðangrana á toppinn: Þann fyrsta, sem því miður misttókst, þann sem tókst, þegar Edmund Hillary sté á tindinn, þann sem Reinhold Messner fór einsamall og svo um árið 1996, sem var þakið slysum.

Everest #tab1
Hnattrænar #tab2
Apollo #tab3
Auglýsing
ELÍSA GUDRÚN EHF. - Útgáfufélag Lifandi Vísinda
  • Klapparstígur 25
  • 101 Reykjavík
  • Sími: 570-8300
  • Opnunartími: 9 - 12 alla virka daga
  • lifandi@visindi.is
Höfundarréttur: isProject ehf. © 2010. Allur réttur áskilinn.