Fylgstu með okkur á Twitter Sjáumst á FaceBook Gerast áskrifandi

Geimferðir og geimrannsóknir

Nýjasta greinin
Mars er með mikið af ís undir yfirborðinu

Enginn vafi leikur á að ís er að finna á Mars. Stjörnufræðingar geta beinlínis séð hvítan ísinn á pólunum þar sem hann liggur í margra metra lagi. En nú hefur geimkanninn Mars Reconnaissance Orbiter (MRO) einnig fundið ís nær miðbaug Mars á breiddargráðu sem hér á jörðu samsvarar suðurhluta Evrópu. Ísinn liggur mörg hundruð metra undir yfirborðinu á svæðinu Deuteromilus Mensai sem er á 42,4° norðlægrar breiddar á afar jarðfræðilega áhugaverðu svæði. Þar liggja mörkin milli gamals landslags þöktu gígum og flatri láglendri sléttu Vastitas Borealis, sem kann að hafa verið þakið hafi fyrir meira en 2 milljörðum ára. Landslagið þarna er alsett stökum björgum, flötum sléttum og giljum. Utanfrá er fátt sérstakt að sjá Lesa meira

Greinalisti

Stefnan tekin á loftsteinana

Obama Bandaríkjaforseti hefur háar hugmyndir um framtíð geimferða: „Árið 2025 vænti ég þess að við höfum í fyrsta sinn tilbúið geimskip sem ætlað er til að flytja menn um lengri veg en til tunglsins. Við byrjum á að láta menn lenda á stórum loftsteini í fyrsta sinn í sögunni. Upp úr 2030 geri ég ráð fyrir að við getum sent mannað geimfar á braut um Mars. Í kj Lesa meira

Gleymdur tunglbíll kemur að góðu haldi

Þann 17. nóvember 1970 lenti rússneski tunglbíllinn Lunokhod 1 á tunglinu. Þetta var fyrsta vitvélin sem send var til annars hnattar og þessi litli, sjálfvirki bíll ferðaðist um á tunglinu og tók þar myndir í heilt ár, áður en sambandið við hann rofnaði. En sögu Lunokhods 1 reyndist ekki þar með lokið, því nú hefur hópi vísindamanna hjá Kaliforníuháskóla í San D Lesa meira

Hve margir hafa farið út í geim?

512 manns frá 38 löndum hafa farið út í geim. Til að teljast með, þarf maður að hafa farið í 100 km hæð. Lesa meira

Úr geimnum til jarðar

Hvað eiga lending geimfars á Títan og poki af kartöfluflögum sameiginlegt? Ekki neitt er auðvitað fyrsta svarið sem manni dettur í hug. Staðreyndin er þó sú að þýsku geimiðnaðarfyrirtæki tókst að tengja þetta tvennt saman. Hjá Hyperschall Technologie Göttingen starfa menn við það dagsdaglega að þróa stærðfræðilíkön um hegðun geimskipa við lendingu t.d. á Tít Lesa meira

Nýr sjónauki mælir mestu orku alheims

Fyrir meira en 7 milljörðum ára gerðust firn mikil í fjarlægri stjörnuþoku. Rétt eins og margar aðrar stjörnuþokur hafði þessi stórt svarthol í miðju sinni sem gleypti í sig gríðarlegt magn efnis frá stjörnuþokunni. Reyndar var þetta svarthol umlukið gríðarlegri aðsópsskífu efnis og gass. Rétt eins og þegar vatn rennur úr baðkari var efnið úr skífunni sogað ni Lesa meira

Nýfundin pláneta með miklu vatni

Nýuppgötvuð pláneta er svo lík jörðinni að hún er nefnd „Ofur-Jörð“. Plánetan er að mestu úr vatni sem að líkindum er frosið. Umhverfis plánetuna, sem fengið hefur heitið GJ 1214b, er 200 km þykkt og afar þétt gufuhvolf, sem einkum er úr vetni og helíum. Plánetan er of heit til að halda í gufuhvolf og stjörnufræðingarnir gera því ráð fyrir að það hafi ann Lesa meira

Japanir sækja orku út í geim

Árið 2040 hyggjast Japanir skjóta á loft gervihnetti sem fangar sólskin í geimnum og sendir orkuna til jarðar í örbylgjuformi. Gervihnötturinn á að vera á staðbrautinni í 36.000 km hæð yfir miðbaug þar sem hann verður því sem næst stöðugt baðaður í sólskini. Þar eð örbylgjur berast vandræðalaust gegnum ský verður með þessu móti unnt að tryggja orkuvinnslu Lesa meira

Nú eiga sólarsegl að knýja geimför

Gamall geimferðadraumur er nú loks að verða að veruleika: geimför sem knúin verða áfram af orkunni frá ljóseindum sólarinnar þegar þær skella á næfurþunnri seglhimnu. Einkafyrirtækið „The Planetary Society“ sendi reyndar árið 2005 á loft gervihnött með sólarsegli, en galli í rússnesku eldflauginni sem átti að koma honum upp leiddi til þess að tilraunin rann Lesa meira

Hvað gerist ef skotið er af skammbyssu í geimnum?

Það er ekki að ástæðulausu sem skotvopn eru bönnuð í geimnum. Ef geimfari hleypti af skammbyssu t.d. í ISS-geimstöðinni, yrðu afleiðingarnar allt aðrar en þær sem við þekkjum á jörðinni. Sjálfur myndi geimfarinn kastast aftur á bak af miklum krafti og myndi að öllum líkindum skaddast alvarlega af árekstri sínum við vegg eða einhver þeirra fjölmörgu tækja sem e Lesa meira

Heill her af vitvélum rannsakar geiminn

Það mun ekki líða langur tími til þar til hvers kyns tæki, búin gervigreind, fljúga, svífa, ganga og grafa á framandi himinhnöttum og hafa samtímis innbyrðis tjáskipti hvert við annað. Þetta segja eðlisfræðingarnir Wolfgang Fink og félagar hans hjá Tæknistofnun Kaliforníu í Pasadena, sem komið hafa upp prófunarbrautum til tilrauna með gervigreindarþjarka. Nú eru f Lesa meira

GREIN 1 - 10 AF 54 GREINUM SÍÐA:   1 2 3 4 5 6
Áhugaverðar greinar
Þemagreinar

150 ára barátta við Everest

Manninn hefur lengið langað til að stíga á topp hæsta fjalls heims. Leiðin er hin lengsta og mannskæðasta sem menn hafa tekist á við. Hún hefst með mælingum Breta á miðri 19. öld en það er ekki fyrr en upp úr 1920 sem þeir eru reiðubúnir að reyna við tindinn í fyrsta sinn.

Lifandi Vísindi birti fjórar stórar greinar um merkustu leiðangrana á toppinn: Þann fyrsta, sem því miður misttókst, þann sem tókst, þegar Edmund Hillary sté á tindinn, þann sem Reinhold Messner fór einsamall og svo um árið 1996, sem var þakið slysum.

Everest #tab1
Hnattrænar #tab2
Apollo #tab3
Auglýsing
ELÍSA GUDRÚN EHF. - Útgáfufélag Lifandi Vísinda
  • Klapparstígur 25
  • 101 Reykjavík
  • Sími: 570-8300
  • Opnunartími: 9 - 12 alla virka daga
  • lifandi@visindi.is
Höfundarréttur: isProject ehf. © 2010. Allur réttur áskilinn.