Hvernig getur staðið á því að augnhár vaxa öðruvísi en hár á höfðinu, svo dæmi sé nefnt?
Maðurinn er með á að giska fimm milljónir hára á líkamanum, sem skiptast þannig að um 100.000 vaxa í hársverðinum en afganginn er að finna víðs vegar um líkamann, að undanskildum lófum og iljum. Hvert einasta hár myndast í sínum eigin hársekk, sem stjórnast af boðefnum líkamans um að láta hárið vaxa, stöðva vöxtinn og leggjast í dvala ellegar að sleppa taki á hárinu með þeim afleiðingum að það dettur af. Lengd háranna ræðst svo af lengd vaxtarskeiðsins en slíkt skeið getur staðið yfir í nokkur ár þegar höfuðhár eiga í hlut en á hinn bóginn vaxa augabrúnir aðeins í örfáa mánuði í senn. Vaxtarhraði hársekkjanna stjórnast af ýmsum hormónum en hársekkirnir bregðast ekki eins við þeim og því vaxa hár með ólí Lesa meira
Ysta lag húðarinnar er gert úr sérstökum frumum. Í þeim er slitþolið prótein sem gegnir m.a. því hlutverki að halda frumunum saman. Þegar húðin liggur í vatni, virkar þetta prótein sem nokkurs konar svampur og drekkur í sig vökva. Ef húðin liggur nokkra stund í vatninu dregur próteinið svo mikinn vökva í sig að hornhúðin bólgnar. Þegar þannig fer, tekur hornhúð Lesa meira
Við sjáum með augunum. Flestir munu reiðubúnir að samþykkja þessa fullyrðingu. En Paul Bach-y-Rita, prófessor við Wisconsin-háskóla í Bandaríkjunum er þó reyndar á öðru máli. Hann telur að við sjáum með heilanum og með myndavél sem tengd er við tunguna megi veita blindu fólki ósvikna sjónupplifun. Eðlileg sjón grípur ljóshrif frá umhverfinu og þessi ljóshrif Lesa meira
Ungbarnasund er vinsælt enda skapast þannig náið samband milli barnsins og foreldranna. Auk þess hefur sannast að ungbarnasundið örvar skilningarvit barnsins og hreyfigetu. Öll börn fæðast með köfunarviðbrögð. Rétt við raddböndin eru sérstakir efnaviðtakar og verði þeir varir við vökva sem er líkamanum óviðkomandi, sjá þeir sjálfkrafa til þess að barkinn lokist o Lesa meira
Það er afar sjaldgæft að fólk sé ekki með sama lit í báðum augum. Það er lithimnan sem ræður litnum. Þetta er himna með gati í miðjunni og hún skilur að fremra og innra hólf augans. Sé mikið litarefni í lithimnunni verður augað brúnt sem sé lítið af litarefninu verður augað blátt. Nýjar rannsóknir hafa sýnt að erfðirnar að baki augnalitnum eru mun flóknari Lesa meira
Okkur þykir vænt um hárið. Við greiðum það oft á dag, þvoum það vandlega úr sérstakri sápu, berum í það næringu og komum því í réttar stellingar með geli. Við látum líka krulla það, lita og klippa. En svo náin væntumþykja er sjaldnast vandræðalaus og hárið veldur okkur svo sannarlega líka miklum áhyggjum. Það getur átt til að detta af höfðinu, þar sem v Lesa meira
Öll berum við reyndar með okkur hundruð smádýra, sem lifa kyrrlátu og lítt áberandi lífi á líkama okkar. Til að skoða þessa laumufarþega þarf þó smásjá. Hármaurarnir eru nefnilega aðeins 0,2 – 0,3 mm að lengd. Þeir hafa átta stutta fætur og langan hala og halda sig í hársekkjum og fitukirtlum í húðinni. Þarna koma þeir sér fyrir með hausinn inn á við og lifa Lesa meira