Fylgstu með okkur á Twitter Sjáumst á FaceBook Gerast áskrifandi

Maðurinn

Nýjasta greinin
Spilaðu tölvuleiki og stýrðu draumum þínum

Þeir sem spila tölvuleiki eru betur í stakk búnir til að hafa hemil á draumum sínum en aðrir, ef marka má rannsókn sem gerð var í Kanada nýverið. Þeir hinir sömu nýta sér nefnilega reynslu sína af leikjunum til að forðast hætturnar og stjórna því hvað á sér stað í draumunum. Til stendur að rannsaka hvort nota megi tölvuleiki til að losa stríðshrjáða hermenn við martraðir eftir að þeir snúa heim úr stríði.

Þú færð martröð og þig dreymir að maður með hníf elti þig eftir löngum dimmum gangi. Þú hleypur hratt en hann nálgast þig óðfluga. Það glampar á hnífinn í myrkrinu. Þú reynir að hlaupa hraðar en fæturnir neita að hlýða. Eftir örfáar sekúndur nær maðurinn þér og stingur þig. Þú getur ekkert að gert. Eða hvað? Þeir sem spila tölvuleiki reglulega og eru vanir því að stýra manneskju í sýndarheimi tölvuleikjanna eru sennilega einnig færir um að stjórna draumum sínum. Þetta sýna rannsóknir kanadíska sálfræðingsins Jayne Gackenbach. Hún hefur gert margar tilraunir með hvernig nýta megi tölvuleiki til að hafa hemil á draumum og niðurstöðurnar hafa sýnt henni, svo ekki verður um villst, að þetta er mæta vel hægt: Tö Lesa meira

Greinalisti

Eru eineggja tvíburar erfðafræðilega eins?

Eineggja tvíburar verða til þegar hið frjóvgaða egg er búið að skipta sér einu sinni og frumurnar tvær skilja sig hvor frá annarri og þróast síðan hvor um sig áfram í fóstur og barn. Í upphafi eru eineggja tvíburar þess vegna erfðafræðilega alveg eins, enda myndaðir úr sömu eggfrumunni. Það er þannig ógerlegt að gera greinarmun á þeim með DNA-rannsókn. Það he Lesa meira

Eftir 25 ára stríð gegn HIV sjá fræðimenn ljós í myrkrinu

Um mörg hundruð þúsund ára skeið smitaði veiran SIV ónæmiskerfi simpansa og mararkatta. Rétt eins og aðrar útbreiddar veirur tryggði hún viðkomu sína með því að auðsýna fórnarlambinu nokkra miskunn. Aparnir fundu einungis væg einkenni og á meðan hafði SIV færi á að dreifast, stökkbreytast og þróa form með nýjum eiginleikum. Á mörgum stöðum í Afríku eru Lesa meira

Frumupokar gegn Alzheimer

Læknisfræði Ný meðferð gegn Alzheimer hefur nú verið reynd á þremur sjúklingum á Karólínska háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi og þykir lofa góðu. Aðferðinni má helst líkja við tepoka sem settur er í heitt vatn og bragðefnin berast þá út í vatnið, án þess að telaufin sjálf fylgi með. Í stað tepokans koma hér genagræddar frumur, umluktar himnu, sem fram Lesa meira

Útgáfa 1.0 úreltist fyrir 10.000 árum

Áður fyrr söfnuðum við rótum, ávöxtum og hnetum, eltum uppi margs konar bráð og veiddum fisk. Endrum og sinnum stálum við hræi frá stóru rándýrunum. Nú höldum við leiðar okkar vopnaðir kreditkortum í kæliborðum stórmarkaðanna. Fyrir ekki svo löngu síðan fengum við ofgnótt af fersku lofti og hreyfingu. Nú til dags sitja flest okkar kyrr fyrir framan tölvu marga Lesa meira

Vísindamenn finna G-blettinn í konum

Læknisfræði Ítalskir vísindamenn hafa nú sett fram nýja kenningu, þess eðlis að G-bletturinn frægi, sé alls ekki lítið, afmarkað svæði, heldur hafi sumar konur óvenju þykkan skeiðarvegg og séu þar af leiðandi færar um að fá svonefnda skeiðarfullnægingu. Við rannsókn sína ómskoðuðu vísindamennirnir lítinn hóp kvenna. Tæplega helmingurinn hafði upplifað skei Lesa meira

Þróunin snýr við

Árlega enda um 20.000 höfrungar og grindhvalir á matarborði Japana. Hvalavöður eru reknar upp á grynningar þar sem hvalirnir eru skornir og kjötið fer síðan í kæliborð verslana. Vorið 2006 komst þó einn stakur höfrungur, nánar tiltekið stökkull, hjá þessum örlögum. Það var þó ekki vegna þess að smáhvalnum tækist að stinga af, heldur fyrir þá sök að fiskimenni Lesa meira

Líkja eftir vef sæbjúgans

Læknisfræði Bandarískir vísindamenn hafa nú þróað nýtt efni sem ýmist getur verið sveigjanlegt eða stíft og leituðu fyrirmyndar hjá sæbjúgum. Sæbjúgu geta á örfáum sekúndum gert mjúka húð sína stífa og öfugt. Húðin stífnar þegar skepnan þarf að verjast rándýri. Þetta sjávardýr veitti vísindamönnunum innblástur og þeir telja að nýja efnið megi not Lesa meira

Nú vilja fræðimenn frelsa hinn leynda snilling okkar

Fyrir framan píanóið er John sannkallaður snillingur. Eftir einn af konsertum hans í Ontario, BNA, kom grein í tímariti þar sem honum var lýst sem „frábærlega hæfileikaríkum manni“. Þess þó heldur þar sem hann hefur aldrei hlotið leiðsögn í tónlist og spilar einvörðungu með vinstri hendi, enda kemur hægri hönd hans honum ekki að neinum notum. John hefur verið á st Lesa meira

Nú slær hið ræktaða hjarta

Læknisfræði Nú hafa vísindamenn við Minnesota-háskóla í Bandaríkjunum ræktað gervihjarta og fengið það til að slá. Þessi tímamótaviðburður byggist á nýrri tækni og vísindamennirnir notuðu dautt hjarta sem eins konar skapalón eða stoðgrind fyrir nýja hjartað. Hingað til hafa vísindamennirnir notað hjörtu úr rottum. Með sérstakri upplausn fjarlægðu þeir Lesa meira

Af hverju verður fólki ekki kalt í framan?

Tilgangurinn með hita- og kuldaskyni er fyrst og fremst að viðhalda stöðugum líkamshita. Þegar heilanum berast stöðugt upplýsingar frá hitanæmum taugafrumum, notar hann þessar upplýsingar til að stýra blóðflæði til húðarinnar, efnaskipta og ýmislegs annars sem hefur þýðingu fyrir hitajafnvægið. Eitt af því sem heilinn getur haft áhrif á er hegðun okkar. Þega Lesa meira

GREIN 81 - 90 AF 215 GREINUM SÍÐA:   1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18
Áhugaverðar greinar
Þemagreinar

150 ára barátta við Everest

Manninn hefur lengið langað til að stíga á topp hæsta fjalls heims. Leiðin er hin lengsta og mannskæðasta sem menn hafa tekist á við. Hún hefst með mælingum Breta á miðri 19. öld en það er ekki fyrr en upp úr 1920 sem þeir eru reiðubúnir að reyna við tindinn í fyrsta sinn.

Lifandi Vísindi birti fjórar stórar greinar um merkustu leiðangrana á toppinn: Þann fyrsta, sem því miður misttókst, þann sem tókst, þegar Edmund Hillary sté á tindinn, þann sem Reinhold Messner fór einsamall og svo um árið 1996, sem var þakið slysum.

Everest #tab1
Hnattrænar #tab2
Apollo #tab3
Auglýsing
ELÍSA GUDRÚN EHF. - Útgáfufélag Lifandi Vísinda
  • Klapparstígur 25
  • 101 Reykjavík
  • Sími: 570-8300
  • Opnunartími: 9 - 12 alla virka daga
  • lifandi@visindi.is
Höfundarréttur: isProject ehf. © 2010. Allur réttur áskilinn.