Löngu er vitað að Leonardo Da Vinci var framúrskarandi málari. En hann kemur ennþá vísindamönnum á óvart. Þegar franskir fræðimenn rannsökuðu nýlega frægasta málverk hans, Monu Lisu, með þróaðri röntgentækni kom í ljós nánast óskiljanlega fáguð málaratækni með svonefndu röntgen-flúrljómunar-rófi sem sérfræðingar við m.a. evrópsku geislunarstofnunina nærri borginni Grenoble framkvæmdu. Við rannsóknina kom í ljós að Da Vinci nýtti allt að 40 mismunandi örþunn lög af málningu til að skapa hið fræga bros Monu Lisu. Hvert lag er milli einn og tveir míkrómetrar á þykkt sem er 50 sinnum þynnra en mannshár. Samanlögð þykkt laganna er sjaldnast meira en 30 – 40 míkrómetrar. Innihald hvers lags af litarefnum, olíu og trják Lesa meira
Eftir fyrri heimstyrjöld lagðist spænska veikin þungt á íbúa Evrópu og varð um 20 milljón manns að bana. Í síðari heimsstyrjöld óttuðust menn annan faraldur og árið 1942 hratt breska heilbrigðisráðuneytið af stað auglýsingaherferð undir yfirskriftinni „Hósti og hnerrar dreifa sjúkdómum“. Og föðurlandsástin var látin fylgja með: „Höldum þjóðinni bardagaf Lesa meira
Á Hawaii er sagt „lua“, á Samóa „e lua” og á Fijieyjum segja menn „e rua”. Maórar á Nýja Sjálandi segja „rua” og á Filippseyjum segja menn „duha”. Jafnvel þótt 10.000 kílómetrar aðskilji eyjarnar tákna orðin töluna 2 á öllum tungumálunum. Tungumálin sem töluð eru á eyjum Kyrrahafsins eru svo lík hvert öðru að ekki getur verið um tilviljanir að r Lesa meira
Nú getum við tekið okkur stöðu andspænis fyrsta Evrópumanninum. Breskur réttarmeinafræðingur og sérfræðingur í endurgerð andlita, Richard Neave, hefur endurgert þetta andlit út frá höfuðkúpubrotum og kjálkabeini sem fannst í helli í Rúmeníu fyrir fáeinum árum. Samkvæmt aldursgreiningu eru beinaleifarnar 34-36 þúsund ára. Nútímamaðurinn kom til Evrópu frá Afrík Lesa meira
Kameldýr, hestar, kindur og birnir. Öll þessi dýr voru á matseðli Clovis-þjóðarinnar sem uppi var í Norður-Ameríku fyrir 13.000 – 13.500 árum. Þessi nýja þekking á matarvenjum hinnar fornu þjóðar fékkst með greiningum á 83 steináhöldum sem fundust fyrir tilviljun á býli skammt frá Boulder í Colorado. Á tæplega hálfs metra dýpi kom venjuleg skófla niður á merk Lesa meira
Engin hætta fylgir því að borða upphitaðan mat með spínati eða steinselju, svo fremi að þetta grænmeti hafi verið skolað vel fyrir matreiðsluna og matarleifarnar kældar eins og vera ber. Það gamla húsráð að óráðlegt sé að hita upp aftur mat með spínati, steinselju eða öðru smáblöðóttu grænmeti, jafnvel þótt hann hafi verið frystur, á rætur að rekja til Lesa meira
Á lokadögum seinni heimsstyrjaldar þurfti skipstjóri þýska kafbátsins U-1206 á klósettið. Kafbáturinn var á siglingu á um 60 metra dýpi meðfram norðurströnd Skotlands. Því miður kunni skipstjórinn, Karl Adolf Schlitt, ekki í smáatriðum á þetta nýja klósett sem nýbúið var að setja upp. Hann kallaði tæknimenn sína á vettvang og þeir opnuðu – því miður ranga Lesa meira
Árið 1903 byrjar Gillette að framleiða rakvél með skiptanlegu blaði. Í október það ár birtast fyrstu auglýsingarnar í blöðum og tímaritum. Í auglýsingunum er lögð áhersla á öryggi, ásamt því að eftir raksturinn sé húðin jafn mjúk og á kornabarni. Já, jafnvel kornabarn getur notað Gillette án þess að skera sig. Lesa meira
Samkvæmt kennslubókunum voru það Nýsjálendingurinn Edmund Hillary og Nepalinn Tenzing Norgay sem fyrstir manna náðu alla leið á tind Everestfjalls árið 1953. Hugsanlegt er hins vegar að tveir Englendingar hafi komist á tindinn heilum 29 árum fyrr, þeir George Mallory og Andrew Irwine. Þann 8. júní lögðu þeir af stað á tindinn en sáust aldrei framar á lífi. Menn hafa f Lesa meira
Sem liður í undirbúningi á stækkun járnbrautateina var svæði nokkurt á norðurströnd Sikileyjar rannsakað árið 2008 af fornleifafræðingum frá Palermo. Að sögn forstöðumannsins dr. Stefano Vassallo voru menn ekki í vafa um að þarna væri einhverjar grafir að finna. Rústirnar af hinum forna gríska bæ Himera voru enda skammt undan. En umfang grafreitsins kom á óvart. Fyr Lesa meira
Í pýramídabænum al-Lahun, á vesturbakka Nílar og fyrir sunnan Kaíró, hafa egypskir fornleifafræðingar fundið grafreit með 53 vel varðveittum múmíum. Sumar eru allt að 4.000 ára gamlar og lágu í fagurlega skreyttum trékistum í gröfum sem höggnar voru í klöpp. Auk múmíanna fundu fornleifafræðingarnir 15 málaðar andlitsgrímur, leirmuni, heillagripi og kapellu með f Lesa meira