Fylgstu með okkur á Twitter Sjáumst á FaceBook Gerast áskrifandi

Náttúran

Nýjasta greinin
Líffræðingar róa lífróður til að bjarga viðkvæmum bryndrekanum

Styrjan lætur ekki að sér hæða. Hún hefur haldið brynvörðu útliti sínu og lifað óbreytt í 250 milljónir ára. Hins vegar eru biksvörtu hrognin í kvið hennar, sem ættu að tryggja framtíð styrjunnar, svo eftirsótt að styrjan er nánast í útrýmingarhættu.

Gífurlegur fjöldi styrjuhrygna í Kaspíahafi leitar upp árnar í átt að bestu hrygningarstöðunum. Þær eru útþandar af eggjum sem þær nú hrygna í klösum sem fljóta um á árbotninum. Fyrr en varir er aragrúi af hængum mættur á svæðið og þeir frjóvga eggin með því að sprauta svili sínu yfir þau. Að viku liðinni hafa frjóvguð eggin svo breyst í litlar styrjur sem synda sjálfar um. Þannig var þessu að minnsta kosti eitt sinn farið. Í dag er hins vegar liðin meira en hálf öld síðan þær fjórar til fimm tegundir sem enn lifa í Kaspíahafi gátu hrygnt fyrirvaralaust. Ástæðan fyrir ógninni gegn þeim 27 tegundum sem synt hafa um heimsins höf undanfarin 250 milljón ár er það sem kalla mætti geðveikislega eftirspurn eftir rándýrum Lesa meira

Greinalisti

Slanga með haus á báðum endum

Líffræðingar hafa uppgötvað áður óþekkta tækni hjá sæslöngunni Hydrophis pachycercos. Slangan narrar óvini sína með því að láta líta svo út sem hún hafi haus á báðum endum. Litur á halanum líkist höfðinu og þegar halinn er hreyfður á sama hátt er blekkingin þar með fullkomnuð. Og, jú, hausinn er á neðri endanum hér á myndinni." Lesa meira

Fuglar glötuðu þumlinum

Lítill fingurköggull úr nýfundnum steingervingi styður þá kenningu að fuglar séu komnir af forneðlum. Beinið er úr eðlu sem verið hefur keimlík strúti og kallast Limusaurus inextricabilis og sýnir að þumalfingurinn hefur verið að hverfa. Í vængjum fugla er ekkert bein samsvarandi þumli, heldur aðeins vísifingri, löngutöng og baugfingri."" Lesa meira

Óþekkt dýr leynast undir ferðamannaeyju

Þegar líffræðingar leggja upp í leit að nýjum dýrategundum er vinsæl ferðamannaeyja yfirleitt ekki fyrsti staðurinn sem þeim dettur í hug. En það mætti kannski taka til endurskoðunar, a.m.k. ef aðstæður kynnu að vera eitthvað svipaðar og á eyjunni Lanzarote. Þar hafa vísindamenn, m.a. hjá dýralæknaháskólanum í Hannover, uppgötvað áður óþekkta tegund hellakrabb Lesa meira

Fílskýrin Mary var hengd

Sirkusfíllinn Mighty Mary tróð einn gæslumanna sinna til bana úti á miðri götu í Tennessee árið 1916. Óttasleginn múgurinn krafðist hefnda og ekki var um annað að ræða en að taka Mary af lífi. Sirkusstjórinn setti keðju um háls skepnunnar og hífði hana upp í krana. Keðjan gaf sig en aftakan heppnaðist í annarri tilraun. Lesa meira

Ofursvelti dýranna

Fyrir flest dýr er lífið jafnvægisdans þar sem skiptast á tímabil allsnægta og hungurs. Þess betur sem dýrin geta þolað svelti, því meiri líkur eru á að þau geti lifað af. Sum dýr eru sannkallaðir meistarar á þessu sviði, meðan önnur geta vart lifað af einn matarlausan dag. Skilvirkur orkusparnaður er lykillinn til að lifa af langvarandi sult. Til að spara lífsna Lesa meira

Hversu vel heyrir hundur?

Hljóð sem maður heyrir í 25 metra fjarlægð, heyrir hundur í 250 metra fjarlægð. Heyrn hundsins nær líka yfir stærra tíðnisvið. Ungt fólk heyrir hljóð upp í 20.000 sveiflur á sekúndu en hundar greina allt upp í 50.000 sveiflur. Lesa meira

Af hverju virðist sótthreinsunarefni kalt?

Langflestar gerðir sótthreinsiefna til handþvotta innihalda 70-85% alkóhól og fjarlægja af þeim sökum meira en tífalt fleiri bakteríur en venjulegur handþvottur. Alkóhól er rokgjarn vökvi sem gufar hratt upp og því þarf maður ekki að þurrka hendurnar eftir sótthreinsun. Þetta sparar ekki aðeins tíma heldur kemur líka í veg fyrir að nýjar bakteríur berist úr handkl Lesa meira

Er ójafnvægi í þyngd hnattarins?

Vissulega mætti ætla að hin ójafna skipting þurrlendis og hafsvæða ylli því að norðurhluti hnattarins væri þyngri en suðurhlutinn. En reyndar heldur jörðin sér í ágætu þyngdarjafnvægi. Ástæðuna nefna jarðfræðingar flotjafnvægi eða „isostasy“. Þegar fellingafjöll myndast eða meginland færist til safnast um leið upp mikið berg á ákveðnum stað. Þungi be Lesa meira

Hvernig virkar reiðin?

Reiðin er tilfinningalegt ástand og eins og aðrar tilfinningar á hún upptök sín í svokölluðu randkerfi heilans (limbic system). Randkerfið tilheyrir að hluta þeim hluta heilans sem er gamall í þróunarsögunni og þess vegna svipaður og í fjölmörgum dýrum. En til kerfisins teljast einnig svæði í heilaberkinum, sem liggur yst og er um leið nýjasti hluti spendýraheilans. Í Lesa meira

Er bit komodódrekans eitrað í raun og veru?

Bit komodódrekans drepur bæði dýr og menn. Fram að þessu hefur verið talið að bakteríur í munnvatni skepnunnar ræni bráðina lífi, en nýjar rannsóknir sýna að þessi stóra eðla notar eins konar taugaeitur til verksins. Líffræðingurinn og eiturefnasérfræðingurinn Bryan Fry við Melbourne-háskóla í Ástralíu hefur skannað varðveitt höfuð komodódreka með MR-skan Lesa meira

GREIN 91 - 100 AF 457 GREINUM SÍÐA:   1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19
Áhugaverðar greinar
Þemagreinar

150 ára barátta við Everest

Manninn hefur lengið langað til að stíga á topp hæsta fjalls heims. Leiðin er hin lengsta og mannskæðasta sem menn hafa tekist á við. Hún hefst með mælingum Breta á miðri 19. öld en það er ekki fyrr en upp úr 1920 sem þeir eru reiðubúnir að reyna við tindinn í fyrsta sinn.

Lifandi Vísindi birti fjórar stórar greinar um merkustu leiðangrana á toppinn: Þann fyrsta, sem því miður misttókst, þann sem tókst, þegar Edmund Hillary sté á tindinn, þann sem Reinhold Messner fór einsamall og svo um árið 1996, sem var þakið slysum.

Everest #tab1
Hnattrænar #tab2
Apollo #tab3
Auglýsing
ELÍSA GUDRÚN EHF. - Útgáfufélag Lifandi Vísinda
  • Klapparstígur 25
  • 101 Reykjavík
  • Sími: 570-8300
  • Opnunartími: 9 - 12 alla virka daga
  • lifandi@visindi.is
Höfundarréttur: isProject ehf. © 2010. Allur réttur áskilinn.