Ástæður þess að reyk skipa er hleypt út í andrúmsloftið en ekki í sjóinn eru margar. Í fyrsta lagi eykst þrýstingurinn mjög hratt í vatni, eða um u.þ.b. 10 hundraðshluta af loftþrýstingi fyrir hvern metra undir yfirborði sjávar. Þetta gerir það að verkum að beita þyrfti þrýstingi til að hleypa reyknum út í sjóinn og afkastageta vélarinnar myndi að sama skapi minnka. Í öðru lagi hefur reykurinn að geyma brennistein, þungmálma og agnir sem valda myndu mengun í sjónum. Með því að leiða reykinn út í loftið þynnist mengunin miklu hraðar út en raunin yrði í sjónum. Í farþegaskipum skiptir miklu máli að notast við háa reykháfa til að reyknum slái ekki niður á farþegana um borð. Fyrir vikið eru það útreikningar á iðu Lesa meira
Bílstjórar sem annað slagið vilja finna hárið flaxa fyrir vindinum, geta nú skipt út varadekkinu og sett í staðinn rafknúið reiðhjól sem unnt er að fella saman og tekur þá ekki meira pláss en varadekk. Hér er engin keðja en hjólið hleður sig upp með rafmagni frá bílnum þegar það er á sínum stað í skottinu. Þessi vistvæna hugmynd kemur frá Volkswagen, ekki fylgir Lesa meira
Tækni Innan tíðar verður hægt að klæða stór skip þannig að núningsmótstaða verði minni og það getur aftur leitt til allt að 10% orkusparnaðar. Það eru vísindamenn m.a. hjá Rheinische Friedrich-Wilhelm-háskólanum í Bonn í Þýskalandi sem nú eygja þessa von eftir að hafa rannsakað vatnaburknann Salvinia molesta, sem hrindir vel frá sér vatni. Vísindamennirnir æ Lesa meira
Láti maður sig dreyma um skemmtibát má allt eins eiga sér stóra drauma. Þessi nýi glæsibátur frá Schöpfer Yachts gæti innan tíðar látið mjög stóra drauma rætast. Lögunin er óneitanlega sérstæð og minnir helst á kjálka úr risaeðlu, en þar fyrir utan er þyrlupallur fremst, rými fyrir 16 gesti og stór sundlaug, en úr henni má synda um göng yfir í litla í skutnum. Lesa meira
Þegar endalok glóðarperunnar eru nú á næsta leyti keppast margir stórir framleiðendur við að finna heppilegasta ljósgjafann til að taka við. Sparperurnar hafa marga kosti, en líka ýmsa galla. T.d. er í þeim mikið af eitruðum efnum. Nú setur General Electric á markað valkost án eiturefna. Þetta er LED-pera sem aðeins þarf 9 wött en lýsir á við 40 watta glóðarperu. Lesa meira
Nýjasta hugmyndin um aðferð til að vinna orku úr sjávarbylgjum, líkist helst blendingi af ljósabekk og brauðrist. En fyrstu tilraunirnar undan strönd Orkneyja benda til að Oyster Wave Power-orkuverið eigi bjarta framtíð. Tilraunaverið hefur nefnilega skilað umtalsverðri raforku. Eitt af lykilorðunum við þessa hönnun er einfaldleiki. Til að skapa búnað sem bæði stenst i Lesa meira
Brasilíumaðurinn Alberto Santos-Dumont (1873-1932) var í hópi helstu frumkvöðla flugsins. Strax á barnsaldri hreifst hann af hvers kyns tækni og dáði bók Jules Verne, Umhverfis jörðina á 80 dögum. Flugdraumurinn heltók Alberto litla þegar hann horfði upp í himininn heima í Brasilíu. „Ég lá í forsælunni á veröndinni og horfði upp í brasilíska himininn þar sem fugla Lesa meira
Lágorkuskynjari sem er 1.000 sinnum smærri en keppinautarnir hefur nú verið þróaður hjá Michigan-háskóla. Skynjarinn fær orku frá sólinni og má því nota til að vakta byggingar eða brýr í langan tíma. Jafnframt er hann svo lítill að nota má hann við nýjar ígræðslur. Lesa meira
Með alveg sérstakri maraþonsiglingu á næsta ári á nú fyrir alvöru að beina sjónum að endurnýjanlegum orkugjöfum. Tvíbytnan PlanetSolar á að hefja ferð sína í Miðjarðarhafinu og fara kringum hnöttinn á sólaorkunni einni saman. Báturinn er 31 m á lengd og tæpir 15 m á breidd. Hæðin er 7,4 metrar. Hámarkshraðinn verður 8 hnútar eða rétt innan við 15 km/klst. og n Lesa meira
Farsíminn þinn er með eina sem og fartölvan, og brátt kann bíllinn þinn að vera knúinn af rafhlöðum. Rafhlöður er hvarvetna að finna í daglegu lífi okkar og í rafvæddu samfélagi framtíðar munum við reiða okkur enn meira á geymslu rafmagns. En núverandi rafhlöður duga ekki til. Þær eru ekki nægjanlega öflugar og missa of mikla hleðslu með tímanum – og þær geta Lesa meira
Rafbílar eru komnir eða á leið á markað frá framleiðendum um allan heim og nú er röðin líka komin að mótorhjólunum. Einn af stóru kostunum er sá að bygging slíkra hjóla getur verið tiltölulega einföld og hreyfihlutir fáir. Þetta hafði ástralski hönnuðurinn Dan Anderson í huga þegar hann upphugsaði Volta – rafdrifið mótorhjól fyrir adrenalínfíkla með næmt f Lesa meira