Ástæður þess að reyk skipa er hleypt út í andrúmsloftið en ekki í sjóinn eru margar. Í fyrsta lagi eykst þrýstingurinn mjög hratt í vatni, eða um u.þ.b. 10 hundraðshluta af loftþrýstingi fyrir hvern metra undir yfirborði sjávar. Þetta gerir það að verkum að beita þyrfti þrýstingi til að hleypa reyknum út í sjóinn og afkastageta vélarinnar myndi að sama skapi minnka. Í öðru lagi hefur reykurinn að geyma brennistein, þungmálma og agnir sem valda myndu mengun í sjónum. Með því að leiða reykinn út í loftið þynnist mengunin miklu hraðar út en raunin yrði í sjónum. Í farþegaskipum skiptir miklu máli að notast við háa reykháfa til að reyknum slái ekki niður á farþegana um borð. Fyrir vikið eru það útreikningar á iðu Lesa meira
Hugmyndin að baki draumnum: Af braut sinni um jörðu eiga margra kílómetra löng orkuver að senda umhverfisvænar örbylgjur niður til okkar. Þeir sem ímynda sér að draumórar vísindamanna um framtíð geimvísinda séu einkum í stíl við “Star Wars” og nýlendur manna á fjarlægum reikistjörnum, gera rétt í því að hugsa málið alveg upp á nýtt. Sannleikurinn er nefni Lesa meira
Tækni Íbúarnir í Cardiff í Wales, verða nú hinir fyrstu í heiminum sem eiga þess kost að taka sjálfvirkan leigubíl. Þessir nýju leigubílar ganga fyrir rafmagni og ganga á spori sem á mynda þéttriðið net um borgina. Vilji maður leigubíl, þarf ekki annað en fara á næstu biðstöð, sem ævinlega á að vera skammt undan. Svo margir bílar eiga að vera í umferð að ekki Lesa meira
Flugslys vekja alltaf mikla athygli en tölfræðilega séð eru þau afar sjaldgæf. Síðustu 10 ára hafa að meðaltali farist um 1.300 manns árlega í flugslysum. En sveiflur milli ára eru þó miklar. Árið 1996 fórust þannig 2.234 en árið 1997 aðeins 707. Hryðjuverkaárásin á Bandaríkin 11. september gerði það að verkum að 266 bættust við töluna fyrir árið 2001 og hú Lesa meira
Meira en 70% jarðarinnar eru þakin vatni og rannsóknir okkar á þessum dularfulla heimi eru rétt á byrjunarstigi. En nú koma vélarnar til hjálpar. Æ fleiri gerðir neðansjávarfarartækja koma nú til sögunnar og fyrstu hjálpartækin sem búin eru gervigreind hafa þegar farið í fyrstu rannsóknarferðir sínar. Neðansjávarfarkosturinn Corse Corail er kominn til starfa. Hljóð Lesa meira
Bílarnir sem notaðir eru í formúlu I eru að líkindum búnir traustasta slysavarnarbúnaði sem þekktur er. Það er þó langt í frá hættulaust að lenda í slysi á kappakstursbrautinni. Þeir bílar sem nú eru í notkun ná allt að 340 km hraða og geta farið úr kyrrstöðu í 200 km hraða á aðeins 5 sekúndum. Þessir eiginleikar gera miklar kröfur, bæði til viðbragðsflýt Lesa meira