Fylgstu með okkur á Twitter Sjáumst á FaceBook Gerast áskrifandi

Orka og farartæki

Nýjasta greinin
Hvers vegna er reyk úr skipum ekki hleypt út í sjóinn?

Ástæður þess að reyk skipa er hleypt út í andrúmsloftið en ekki í sjóinn eru margar. Í fyrsta lagi eykst þrýstingurinn mjög hratt í vatni, eða um u.þ.b. 10 hundraðshluta af loftþrýstingi fyrir hvern metra undir yfirborði sjávar. Þetta gerir það að verkum að beita þyrfti þrýstingi til að hleypa reyknum út í sjóinn og afkastageta vélarinnar myndi að sama skapi minnka. Í öðru lagi hefur reykurinn að geyma brennistein, þungmálma og agnir sem valda myndu mengun í sjónum. Með því að leiða reykinn út í loftið þynnist mengunin miklu hraðar út en raunin yrði í sjónum. Í farþegaskipum skiptir miklu máli að notast við háa reykháfa til að reyknum slái ekki niður á farþegana um borð. Fyrir vikið eru það útreikningar á iðu Lesa meira

Greinalisti

Stýrt með líkamanum

U3-X heitir nýtt einhjól sem þróað hefur verið hjá Honda. Hjólið sjálft er samsett úr mörgum smærri hjólum og fyrir bragðið verður stjórn hjólsins auðveldari, en hjólinu er einfaldlega stýrt með hreyfingum líkamans. Þetta hátæknihjól vegur tæp 10 kg og fer hægt yfir eða um 6 km/klst. Lesa meira

Sólfangarar í vegum framleiða raforku

Til að leysa orkuþörf framtíðarinnar hugsa menn sér nú að nýta vegi jafnframt sem sólfangara. Bandaríska fyrirtækið „Solar Roadways“ hefur sett fram þessa framtíðarsýn og þar hefur verið þróuð frumgerð alveg nýs yfirborðsefnis sem bæði á að geta komið í staðinn fyrir malbik og steypu. Efst er gegnsætt lag sem er nógu sterkt til að þola þrýstinginn frá Lesa meira

Snúningshólkar drógu skip alla leið yfir Atlantshafið

Árið 1922 fékk þýski verkfræðingurinn Anton Flettner einkaleyfi á nýrri aðferð til að knýja skip. Í stað segla komu snúningshólkar sem nýttu svokölluð Magnus-áhrif sem myndast hornrétt á loftstraum þegar hólkur er látinn snúast. Lítil dísilvél sneri tveimur rafhreyflum sem aftur sneru tveimur sívalningum 120 snúninga á mínútu. Og aðferðin reyndist virka. Skip F Lesa meira

Hvaða máli skiptir oktantala bensíns?

Oktantala bensíns segir til um sjálfkveikihættu bensínsins. Til að bensínvél nýti orkuna sem best þarf að kvikna í bensínblöndunni á nákvæmlega réttum tíma. Þetta er gert með rafneista úr kertinu. Ef kviknar í blöndunni augnabliki of snemma heyrist bank í vélinni og þetta reynir óþarflega mikið á bulluna og sveifarásinn. Bensínið er blandað með lofti og bullan þ Lesa meira

Sjálfstýringin tekur völdin

Þegar miklir skógareldar herja á Kaliforníu senda bandarísk yfirvöld ómannaðar vöktunarflugvélar á loft til að fylgjast með og kortleggja útbreiðslu eldanna. Í suðurhluta Bandaríkjanna, við landamærin að Mexíkó, notar landamæralögreglan ómannaðar flugvélar í leit að ólöglegum innflytjendum, eiturlyfjasmyglurum og mögulegum hryðjuverkamönnum. Þegar fellibyljir ri Lesa meira

Vasaljós hlaðið á 90 sekúndum

Venjuleg vasaljós verða rafmagnslaus. Nýja TacticalLight notast ekki við batterí heldur svokallaða „últrakapacitora“ til að geyma strauminn. Vasaljósið lýsir kröftuglega tímunum saman, drekkur í sig nýja hleðslu á einni og hálfri mínútu og hægt er að endurhlaða það allt að 50.000 sinnum. Lesa meira

Rafknúið hjól sem fella má saman

Rafhjól sem skilar manni hratt og vistvænt um stórborgina. Þetta er hugsunin bak við YikeBike frá Nýja-Sjálandi. Hjólið er knúið af litlum rafmótor og á 15 sekúndum má fella það saman og setja í tösku. Það vegur aðeins 10 kg og því auðvelt að taka það með sér inn á vinnustaðinn og þá þarf ekki að óttast hjólaþjófa. Lesa meira

Sjóbíll sem nær 100 km hraða

Nú kemur flottasta strákaleikfang allra tíma frá bandaríska fyrirtækinu WaterCar. Í Python sjóbílnum virðist hafa verið blandað saman Dodge-pallbíl og Corvette-sportbíl með öflugri hraðbátsvél á afturendanum. Corvette-vélin kemur bílnum á 100 km hraða á 4,5 sekúndum og á sjó skilur hann flesta hraðbáta eftir í kjölfari sínu. Ofan á allt saman kostar hann svo „ek Lesa meira

50 metra há bauja rannsakar lífið í sjónum

50 metra há rannsóknastofa, í lögun eins og bauja, verður látin reka og rannsaka um leið heimshöfin án afláts allan sólarhringinn. Þetta er hugarfóstur franska flotaarkitektsins Jacques Rougerie og farartækið kallar hann SeaOrbiter. Af alls 50 metra hæð verða 30 metrar alltaf neðansjávar og þannig skapast miklir möguleikar til rannsókna á dýralífinu í sjónum. Auk fj Lesa meira

Tröllvaxið skip byggt úr timburfjölum

Eftir fyrri heimsstyrjöld áttu finnskar og sænskar sögunarmyllur gríðarlegar birgðir af tilsöguðu timbri og samtímis var beinlínis æpt á byggingarefni um alla Evrópu. Mörg stór flutningaskip höfðu endað ævidaga sína í stríðinu og því ekkert áhlaupaverk að koma timbrinu til kaupenda. Sumarið 1918 hófust 80 menn í landamærahéruðum Svíþjóðar og Finnlands handa Lesa meira

GREIN 21 - 30 AF 95 GREINUM SÍÐA:   1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
Áhugaverðar greinar
Þemagreinar

150 ára barátta við Everest

Manninn hefur lengið langað til að stíga á topp hæsta fjalls heims. Leiðin er hin lengsta og mannskæðasta sem menn hafa tekist á við. Hún hefst með mælingum Breta á miðri 19. öld en það er ekki fyrr en upp úr 1920 sem þeir eru reiðubúnir að reyna við tindinn í fyrsta sinn.

Lifandi Vísindi birti fjórar stórar greinar um merkustu leiðangrana á toppinn: Þann fyrsta, sem því miður misttókst, þann sem tókst, þegar Edmund Hillary sté á tindinn, þann sem Reinhold Messner fór einsamall og svo um árið 1996, sem var þakið slysum.

Everest #tab1
Hnattrænar #tab2
Apollo #tab3
Auglýsing
ELÍSA GUDRÚN EHF. - Útgáfufélag Lifandi Vísinda
  • Klapparstígur 25
  • 101 Reykjavík
  • Sími: 570-8300
  • Opnunartími: 9 - 12 alla virka daga
  • lifandi@visindi.is
Höfundarréttur: isProject ehf. © 2010. Allur réttur áskilinn.