Fylgstu með okkur á Twitter Sjáumst á FaceBook Gerast áskrifandi

Orka og farartæki

Nýjasta greinin
Hvers vegna er reyk úr skipum ekki hleypt út í sjóinn?

Ástæður þess að reyk skipa er hleypt út í andrúmsloftið en ekki í sjóinn eru margar. Í fyrsta lagi eykst þrýstingurinn mjög hratt í vatni, eða um u.þ.b. 10 hundraðshluta af loftþrýstingi fyrir hvern metra undir yfirborði sjávar. Þetta gerir það að verkum að beita þyrfti þrýstingi til að hleypa reyknum út í sjóinn og afkastageta vélarinnar myndi að sama skapi minnka. Í öðru lagi hefur reykurinn að geyma brennistein, þungmálma og agnir sem valda myndu mengun í sjónum. Með því að leiða reykinn út í loftið þynnist mengunin miklu hraðar út en raunin yrði í sjónum. Í farþegaskipum skiptir miklu máli að notast við háa reykháfa til að reyknum slái ekki niður á farþegana um borð. Fyrir vikið eru það útreikningar á iðu Lesa meira

Greinalisti

Litskrúðsfangarar sundurgreina ljós

Senn koma sólfangarar í fleiri litbrigðum en hinum hefðbundna blásvarta lit. Þeir munu nýta þá hluta sólarljóssins sem venjulegir sólfangarar grípa ekki og virka því t.d. líka þegar skýjað er. Kísillinn er líka sparaður og verðið lækkar um leið. Lesa meira

Rúllugangstétt til að auðvelda umferð

Á heimssýningunni í París árið 1900 voru kynntar til sögunnar tvær merkilegar nýjungar á sviði umferðartækni. Önnur var neðanjarðarlestin „Metro“, sem flutti farþega hratt og örugglega milli borgarhluta. Hitt var langt færiband sem flutti sýningargesti um hin stóru sýningarsvæði, alls um 3 km leið og fór á 8 km hraða. Lesa meira

Lest hélt jafnvægi á einum teini

Írsk-ástralski uppfinningamaðurinn Louis Brennan (1852-1932) var sannfærður um það árið 1903 að hann hefði fundið upp járnbraut framtíðarinnar. Hann fékk þá einkaleyfi á tæknilega mjög þróuðu kerfi sem gerði það að verkum að járnbrautarvagnar héldu jafnvægi á einum teini. Uppfinningin sló þó aldrei í gegn, því fólk þorði ekki að treysta á öryggi hennar. Lesa meira

Nú ætlar Evrópa að eignast geimferju

Fjölmargir gervihnettir fyrir rannsóknir, veðurathuganir og fjarskipti bíða í áraraðir þess að komast á loft, þar sem núverandi geimflaugar anna ekki eftirspurninni. Auk þess er afar kostnaðarsamt að senda gervihnött á braut um jörðu. Þúsundir tæknimanna þarf til að sinna núverandi geimferjum. Burðareldflaugar eru ódýrari, en þær er ekki hægt að nýta aftur, þar s Lesa meira

Vistvænni sláttuvél

Ekki þarf lengur að blása reyk eða skapa óþolandi hávaða við að slá grasflatir. Rafsláttuvélin Recharge Mower er öflug sláttuvél með 900 watta rafmótor og fer létt með að sinna sömu verkum og gömlu bensínvélarnar. Það tekur um 10 tíma að hlaða rafhlöðurnar, en að því loknu er líka hægt að slá gras í þrjá klukkutíma og það ætti að duga ágætlega ja Lesa meira

Vökvakæld pera sparar straum og lýsir með glóð

Dagar glóðarperunnar eru taldir. Sparperur og ýmis konar LED-ljós taka við. En birtan frá þessum vistvænu ljósgjöfum þykir mörgum of kuldaleg. Þess vegna teflir Eternaleds-fyrirtækið nú fram LED-peru sem fyllt er með fljótandi paraffíni. Þessi olía skapar perunni glóð sem bæði gefur eðlilegri birtu og sparar rafmagn. Til að lýsa á við 25 watta glóðarperu þarf þess Lesa meira

Til Mars á 39 dögum

Af hverju að eyða hálfu ári í Marsferð ef hægt er að komast þangað á 39 dögum? Í samvinnu NASA og fyrirtækisins Ad Astra Rocket Company á nú að smíða öflugan fareindahreyfil sem gæti gerbreytt geimferðum. Í geimferðum er megninu af eldsneytinu eytt í að koma geimfarinu frá jörðu og út í geiminn. Eftir það þarf að fara sparlega með og hraðinn verður því ta Lesa meira

Leikfangabíll fer Le Mans-brautina

Hjá Panasonic hafa menn prófað nýjar rafhlöður með því að láta fjarstýrðan leikfangabíl, sem kallast „Mr. Evolta“ aka um hina frægu Le Mans-braut. Þetta tryggði Guinnes-heimsmet fyrir lengstu för rafhlöðudrifins og fjarstýrðs leikfangabíls. Mr. Evolta fór 5,6 hringi á brautinni, eða um 24 km, á aðeins 2 AA-rafhlöðum. Hraðinn var aftur á móti ekki nema rétt und Lesa meira

Rafhjól á yfir 150 km hraða

Margir kannast við strákana í „Orange County Choppers“ úr sjónvarpsþáttum þeirra, þar sem þeir byggja stóra og háværa bensínháka. Nú kemur þetta vélhjólaverkstæði á óvart með rafmagnshjóli sem smíðað er í samstarfi við Siemens. Hjólið hefur það óhefðbundna útlit sem er vörumerki fjölskyldunnar, en er hljóðlaust og kemst 90 km á einni hleðslu. Rafmóto Lesa meira

Nú geta blindir keyrt bíl

Fyrsti blindrabíllinn er strandvagn búinn leysitækjum sem mæla fjarlægðir í umhverfinu. Talgervill segir hinum blinda í hvaða átt hann eigi að stýra. Að auki er bílstjórinn í vesti sem upplýsir hann með titringi um hraða bílsins og ástand vegarins. Lesa meira

GREIN 31 - 40 AF 95 GREINUM SÍÐA:   1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
Áhugaverðar greinar
Þemagreinar

150 ára barátta við Everest

Manninn hefur lengið langað til að stíga á topp hæsta fjalls heims. Leiðin er hin lengsta og mannskæðasta sem menn hafa tekist á við. Hún hefst með mælingum Breta á miðri 19. öld en það er ekki fyrr en upp úr 1920 sem þeir eru reiðubúnir að reyna við tindinn í fyrsta sinn.

Lifandi Vísindi birti fjórar stórar greinar um merkustu leiðangrana á toppinn: Þann fyrsta, sem því miður misttókst, þann sem tókst, þegar Edmund Hillary sté á tindinn, þann sem Reinhold Messner fór einsamall og svo um árið 1996, sem var þakið slysum.

Everest #tab1
Hnattrænar #tab2
Apollo #tab3
Auglýsing
ELÍSA GUDRÚN EHF. - Útgáfufélag Lifandi Vísinda
  • Klapparstígur 25
  • 101 Reykjavík
  • Sími: 570-8300
  • Opnunartími: 9 - 12 alla virka daga
  • lifandi@visindi.is
Höfundarréttur: isProject ehf. © 2010. Allur réttur áskilinn.