Fylgstu með okkur á Twitter Sjáumst á FaceBook Gerast áskrifandi

Orka og farartæki

Nýjasta greinin
Hvers vegna er reyk úr skipum ekki hleypt út í sjóinn?

Ástæður þess að reyk skipa er hleypt út í andrúmsloftið en ekki í sjóinn eru margar. Í fyrsta lagi eykst þrýstingurinn mjög hratt í vatni, eða um u.þ.b. 10 hundraðshluta af loftþrýstingi fyrir hvern metra undir yfirborði sjávar. Þetta gerir það að verkum að beita þyrfti þrýstingi til að hleypa reyknum út í sjóinn og afkastageta vélarinnar myndi að sama skapi minnka. Í öðru lagi hefur reykurinn að geyma brennistein, þungmálma og agnir sem valda myndu mengun í sjónum. Með því að leiða reykinn út í loftið þynnist mengunin miklu hraðar út en raunin yrði í sjónum. Í farþegaskipum skiptir miklu máli að notast við háa reykháfa til að reyknum slái ekki niður á farþegana um borð. Fyrir vikið eru það útreikningar á iðu Lesa meira

Greinalisti

Hversu hátt kemst farþegaþota?

Farþegaþotur halda sig yfirleitt undir 12 km hæð. Einstaka nýrri þotur komast þó allt upp í 13 km hæð. Svo hátt uppi er loftþrýstingur aðeins fjórðungur af þrýstingnum við sjávarmál og af því leiðir að loftið er þynnra, sem sagt lengra milli loftsameindanna. Þetta þýðir að flugvélin þarf að halda meiri hraða til að vængirnir geti borið hana Lesa meira

Skipið stendur föstum fótum á sjávarbotni

Tækni Æ víðar má nú sjá vindmylluver rísa úti á sjó, en það getur verið erfitt að koma þessum vindmyllum fyrir enda eru þær allt að 100 metra háar og vinnukraninn er um borð í skipi sem veltur fyrir bylgjum sjávar. Ein mylla á dag hafa fram að þessu þótt góð afköst. En árið 2011 tekur fyrirtækið Gaoh Offshore í notkun nýja gerð skipa sem ætlað er að reisa Lesa meira

Blendingur á að ná 1.609 km hraða

Tækni Enski hraðbíllinn Bloodhound SSC á að ná meira en 1.600 km hraða. Þar með á að bæta hraðamet farartækja á jörðu niðri um 31%. Núgildandi met var sett með ThrustSSC sem náði 1.228 km hraða árið 1997. Sömu hönnuðir stóðu að baki því verkefni. Tilraunin til að slá metið verður samkvæmt núgildandi áætlun gerð árið 2011. Þetta á að verða gerlegt Lesa meira

Grænt gull

Það þarf bæði nákvæmni og þolinmæði þegar fræðimenn hjá Solazyme stilla lífhvatahylkin. Jafnvel minnstu breytingar í þrýstingi eða hitastigi geta skipt sköpum fyrir þá þörungasúpu sem vænst er að geti verið gulls ígildi. Mestu máli skiptir nefnilega að hámarka bestu ræktunaraðstæður þörunganna. Og helst áður en samkeppnisaðilarnir gera það. Þörungar Lesa meira

Loftskip sem flytja vörur um himinstig

Tækni Á árinu 2012 hyggjast menn hjá Boeing-verksmiðjunum senda á loft tæplega 100 metra langt og 36 metra breitt loftskip. Farartækið er nú í þróun í samvinnu við kanadíska fyrirtækið SkyHook International og er ætlað til flutninga um torfærur, svo sem til og frá Suðurskautslandinu eða um afskekkt svæði í regnskógum Brasilíu – með ódýrum og vistvænum hætti. Lesa meira

Flugvélar framtíðar ná allt að 15 þúsund km/klst

Nú á dögum getur Airbus A38 knúinn með þotuhreyflum lagt að baki þá 17.100 km frá London í Englandi til Sydney í Ástralíu með einni millilendingu á einungis 21 tíma og 35 mínútum. Fyrir 50 árum tók sama ferðalag tvo og hálfan dag og sjö millilendingar á Lockheat Super Constellation knúna hreyflum. En eftir nokkra áratugi verður flugið kannski beint og á einungis 2 tí Lesa meira

Er hægt að fylla á þyrlu á lofti?

Þyrlur geta tekið eldsneyti á flugi á sama hátt og önnur loftför. Bensínið er leitt um slöngu sem látin er síga frá birgðavélinni. Á enda slöngunnar er stór trekt og í henni er tengibúnaður sem læsist við áfyllingarstút þyrlunnar, en sá stútur þarf að vera mun lengri en á venjulegum flugvélum til að þyrluspaðarnir rekist ekki í eldsneytisslönguna. Þar eð Lesa meira

Saltorka fram á sviðið í Noregi

Hvarvetna þar sem vatn rennur til sjávar á sér stað dularfull atburðarás. Þegar ferskvatnið mætir sjónum leysist úr læðingi efnaorka – orka sem til þessa hefur farið til spillis. En vel má nýta þessa orku. Fyrsta saltorkuveri heims er ætlað að sanna það. Saltorkuverið verður vígt í lok ársins. Það er stofnað í tengslum við pappírsverksmiðju í Hurum suður Lesa meira

Getur meðvindur fleytt manni yfir hljóðhraða?

Þegar flugvél fær meðvind í öflugum vindstreng getur hún aukið hraða sinn verulga. Hinir hröðu vindstrengir eru eiginlega hátt liggjandi fljót af loftstraumi. Slíka er jafnan að finna í 9000 - 10500 metra hæð yfir jörðu, einmitt í þeirri hæð sem flugumferð er hvað mest. Hraði vindstrengsins getur á vetrum náð allt að 400 km / klst. og þegar því er bætt við um 90 Lesa meira

Smákafbáturinn heldur í undirdjúpin

Þegar kemur að mönnuðum farartækjum ætlar Kína sér stóran hlut síðar á árinu með COMRA, sem ráðgert er að komist niður á sjöþúsund metra dýpi. Árið 2009 fylgja BNA í kjölfarið með arftaka að hinum þjóðsagnakennda smákafbáti Alvin, sem frá árinu 1964 hefur meira en fjögurþúsund kafanir að baki og verið yfir sextánþúsund klukkustundir í undirdjúpunum. Lesa meira

GREIN 61 - 70 AF 95 GREINUM SÍÐA:   1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
Áhugaverðar greinar
Þemagreinar

150 ára barátta við Everest

Manninn hefur lengið langað til að stíga á topp hæsta fjalls heims. Leiðin er hin lengsta og mannskæðasta sem menn hafa tekist á við. Hún hefst með mælingum Breta á miðri 19. öld en það er ekki fyrr en upp úr 1920 sem þeir eru reiðubúnir að reyna við tindinn í fyrsta sinn.

Lifandi Vísindi birti fjórar stórar greinar um merkustu leiðangrana á toppinn: Þann fyrsta, sem því miður misttókst, þann sem tókst, þegar Edmund Hillary sté á tindinn, þann sem Reinhold Messner fór einsamall og svo um árið 1996, sem var þakið slysum.

Everest #tab1
Hnattrænar #tab2
Apollo #tab3
Auglýsing
ELÍSA GUDRÚN EHF. - Útgáfufélag Lifandi Vísinda
  • Klapparstígur 25
  • 101 Reykjavík
  • Sími: 570-8300
  • Opnunartími: 9 - 12 alla virka daga
  • lifandi@visindi.is
Höfundarréttur: isProject ehf. © 2010. Allur réttur áskilinn.