Þeir sem spila tölvuleiki eru betur í stakk búnir til að hafa hemil á draumum sínum en aðrir, ef marka má rannsókn sem gerð var í Kanada nýverið. Þeir hinir sömu nýta sér nefnilega reynslu sína af leikjunum til að forðast hætturnar og stjórna því hvað á sér stað í draumunum. Til stendur að rannsaka hvort nota megi tölvuleiki til að losa stríðshrjáða hermenn við martraðir eftir að þeir snúa heim úr stríði.
Þú færð martröð og þig dreymir að maður með hníf elti þig eftir löngum dimmum gangi. Þú hleypur hratt en hann nálgast þig óðfluga. Það glampar á hnífinn í myrkrinu. Þú reynir að hlaupa hraðar en fæturnir neita að hlýða. Eftir örfáar sekúndur nær maðurinn þér og stingur þig. Þú getur ekkert að gert. Eða hvað? Þeir sem spila tölvuleiki reglulega og eru vanir því að stýra manneskju í sýndarheimi tölvuleikjanna eru sennilega einnig færir um að stjórna draumum sínum. Þetta sýna rannsóknir kanadíska sálfræðingsins Jayne Gackenbach. Hún hefur gert margar tilraunir með hvernig nýta megi tölvuleiki til að hafa hemil á draumum og niðurstöðurnar hafa sýnt henni, svo ekki verður um villst, að þetta er mæta vel hægt: Tö Lesa meira
Í sjónvarpsgeiranum hefur fólk lengi verið meðvitað um að allt fólk lítur öðru vísi út í sjónvarpi en í raunveruleikanum. Almennt er sagt að fólk sýnist mörgum kílóum þyngra í sjónvarpi en það er í raun og veru. Og nýlega skjalfestu tveir sálfræðingar við Liverpool-háskóla það sem sjónvarpsfólk hefur lengi haft á tilfinningunni. Hópur fólks var beðinn a Lesa meira
Öll börn eru að nokkru leyti fædd matvönd. Sá eiginleiki er okkur meðfæddur að líka illa við það sem er biturt á bragðið. Þetta er einkar heppileg matvendni þar eð margt af því sem er eitrað í náttúrunnar ríki er einmitt biturt á bragðið. Og á hinn bóginn þykir smábörnum gott það sem er sætt, en það á einmitt vel við hina sætu móðurmjólk. Börn bregða Lesa meira
Það er búið að margtyggja það ofan í okkur að sjónvarpsglápið sé böl samtímans. Í besta falli er þetta slævandi tímaþjófur, en í versta falli getur það gert okkur heimsk, tilfinningalaus eða jafnvel ofbeldishneigð. Að vísu hafa sumir sérfræðingar dregið hin illu áhrif sjónvarpsins nokkuð í efa, en enginn hefur þó vogað sér að ganga svo langt að mæla með Lesa meira
11. september 2001. Báðir skýjakljúfar Heimsviðskiptamiðstöðvarinnar í New York standa í ljósum logum eftir að farþegaþotum var rænt og flogið inn í þá. Á efstu hæðunum lést margt fólk samstundis þegar flugvélarnar sprungu en aðrir hlutu alvarleg brunasár. Allir sem færir voru um, tóku að streyma niður því óendanlega langa brunastigana og þangað streyma fljótl Lesa meira
Svart er alls ekki eini liturinn sem þjóðir heims nota til að sýna sorg sína. T.d. í Nepal og sumum múslímalöndum ber fólk hvítar sorgarslæður í stað svartra, hefðbundinna klæða. Meðal frumbyggja Ástralíu er hvítt líka hefðbundinn sorgarlitur. Flestir munu líta á rautt sem einhvers konar skartklæðnað en þetta er þó sorgarlitur meðal ashanti-fólks í Ghana, þar s Lesa meira