Í síðari heimsstyrjöld voru í fyrsta sinn notaðar byssur sem hægt var að skjóta úr fyrir horn. Þjóðverjar voru fetinu framar við að þróa vélbyssur með sveigðu hlaupi, m.a. svonefnt Krummlauf-hlaup sem skrúfað var framan á Sturmgewehr 44 og þá var hægt að skjóta í allt að 90 gráðu horn. Vopnið átti að nota í návígi og án þess að hermaðurinn þyrfti sjálfur að lenda í skotlínunni. Þetta sveigða hlaup reyndist þó ekki vel. Vopnið var ónákvæmt og hlaupið entist afar illa vegna þess hve skotin slitu því hratt. 45 gráðu Krummlauf dugði fyrir 160 skot en venjulegt hlaup þoldi um 10.000 skot. Bandaríkjamenn lentu í sömu vandræðum þegar þeir hugðust sveigja skotlínu M3-vélbyssu. Hlaupið slitnaði upp að innan á örskömmu Lesa meira
Þeir eru niðurdregnir, hermenn Napóleons sem þegar þetta er skrifað, eru á leið heim eftir misheppnaða innrás í Rússland. En á stund ósigursins leggja hermennirnir allir sem einn traust sitt á yfirlækninn Dominique Jean Larrey. Læknirinn hefur bryddað upp á fjölmörgum nýjungum og er stundum nefndur „forsjón hermannanna“. Hann hefur verið óþreytandi við að skipuleggj Lesa meira
Í seinni heimsstyrjöld fylgdi breska herskipið Trinidad 20 skipum sem fluttu hergögn til Sovétríkjanna. Í mars 1942 lenti Trinidad í átökum við þýskan tundurspilli í Norður-Íshafinu og skaut að honum allmörgum tundurskeytum. Eitt tundurskeytanna var þó svo alvarlega gallað að það fór í hring og kom til baka. Trinidad skaddaðist alvarlega en komst þó heilu og höldnu ti Lesa meira
Fundinn! Á skjá sínum hefur leiðangursmaður komið auga á aflangan grunsamlegan hlut á hafsbotni, 70 m undir skipinu. Hann stækkar upp myndina og plottar stöðuna inn á rafrænt sjókort með sentimetra nákvæmni. Síðar um daginn mun fjarstýrður smákafbátur verða sendur niður til að taka nærmyndir af þeim grunsamlegu hlutum sem fundust. Reynist þetta vera tundurdufl held Lesa meira
Af öllum þeim vopnum sem upp hafa verið fundin í sögunni er rússneski keisarabryndrekinn trúlega eitt hið merkilegasta. Bryndrekinn var smíðaður 1914 og vóg um 40 tonn. Að framan voru tvö risavaxin hjól, 9 metrar í þvermál, en að aftan var eitt hjól, að vísu þrefalt en aðeins 1,5 m í þvermál. Afturhjólið var notað til að stýra. Stærð framhjólanna átti að try Lesa meira
Hvar eru flugmóðurskipin? Þetta hefur verið eins konar staðalspurning af vörum sitjandi Bandaríkjaforseta, þegar bólað hefur á ófriðarskýjum eða hernaðarvá gegn Bandaríkjunum síðustu 70 árin. Staðsetning flugmóðurskipanna skiptir svona miklu máli vegna þess að þau eru mikilvægasti einstaki þátturinn í hervörnum Bandaríkjanna. Ekki síst gildir þetta um stærst Lesa meira
Ein af merkilegustu hernaðarhugmyndum sögunnar fólst í því að láta dúfur stýra skotflaugum. Bandaríski sálfræðingurinn B.F. Skinner hafði fulla trú á dúfunum sínum og 1942 úthugsaði hann aðferð sem bandaríski herinn veitti 25.000 dollara til að þróa. Í hverri flaug áttu þrjár dúfur að vera spenntar fastar og fyrir framan þær þrír skjáir með myndum af skotmark Lesa meira
Í lok 19. aldar var breski herinn enn mjög háður riddaraliðinu. En menn voru að byrja að átta sig á möguleikum vélknúinna farartækja. Á sýningu einni árið 1899 kynnti verkfræðingurinn F.R. Simms til sögunnar fjórhjól með hjálparvél og hríðskotabyssu. Skyttan átti að sitja í skjóli aftan við mikinn járnskjöld. Eldsneytisgeymirinn dugði til 190 km aksturs, en fj Lesa meira
Tækni Innan tíðar gætu dularfullir fljúgandi diskar á himni orðið tiltölulega algeng sjón – a.m.k. ef vísindamennirnir hjá norska fyrirtækinu SiMiCon fá einhverju ráðið. Flugvélahönnuðurinn Vegard Hovstein er nú vel á veg kominn með litla, ómannaða vöktunarflugvél, sem helst líkist diski í útliti og getur lent og tekið sig á loft eins og þyrla. Vélin kallast Lesa meira
Saga Mörg hús í bænum Nieuwport í Belgíu eru nú að hrynja. Og sömu örlög bíða mun fleiri húsa í framtíðinni – jafnvel í öllum bæjum meðfram hinum gömlu vesturvígstöðvum fyrri heimsstyrjaldarinnar á Flandri. Hér er ekki um að kenna neinum byggingargöllum, heldur standa þessi hús ofan á miklu netverki gamalla skotgrafa og jarðgangna sem grafin voru í fyrri heimss Lesa meira