Þegar getnaðarvarnarpillur voru leyfðar sem getnaðarvörn í Bandaríkjunum árið 1960 var kynlíf á einu augabragði losað undan oki fjölgunarinnar. Kvenréttindakonur fögnuðu því að konur hefðu nú loks yfirráð yfir eigin líkömum en aðrar óttuðust að pillan myndi hafa í för með sér siðferðislega hnignun. Í dag er pillan nánast jafnalgeng og vítamín og er notuð af meira en 100 milljónum kvenna víðsvegar um heim.
Aðvörun: Þetta efni kemur í veg fyrir egglos. Þessa aðvörun var að finna á miðanum á litla, brúna pilluglasinu sem innihélt lyfið Enovid, sem kom á markað í Bandaríkjunum síðsumars árið 1957. Lyfið hafði nýverið hlotið samþykki yfirvalda í meðhöndlun á óreglulegum blæðingum og skyndilega fjölgaði þeim konum mjög verulega. Innan við tveimur árum eftir að Enovid kom á markað voru ríflega tvær milljónir kvenna farnar að nota lyfið. Það sem flestallar konurnar sóttust eftir var í raun ekki sjálft lyfið Enovid heldur aukaverkunin, þ.e. getnaðarvarnareiginleikinn. Fréttin um þennan aukalega ávinning af töflunum breiddist út eins og eldur í sinu, landshorna á milli, jafnvel þótt getnaðarvarnir væru mikið bannorð og notkun ge Lesa meira
Árið 1886 keypti C.P. Stirn frá Berlín framleiðsluréttinn að njósnamyndavél, sem Bandaríkjamaðurinn Robert D. Gray hafði fundið upp og tryggði sér um leið ótrúlegar sölutekjur. Á aðeins 2 árum seldi hann 15.000 eintök af myndavélinni sem hann kallaði „Consealed Vest Camera“. Linsan var dulbúin sem hnappur og var stungið út um hnappagat. Á vélina var hægt að taka Lesa meira
Þann 3. desember 2009 skráði sólarselluflaugin Solar Impulse nafn sitt í sögubækur. Þá flaug þessi veikburða mannaða flugvél 350 m í nokkurra metra hæð yfir flugbraut í Sviss. Solar Impulse er árangur af meira en 6 ára þrotlausu þróunarstarfi, sem náði hámarki núna í júlí þegar þessi mannaða flaug fór umhverfis jörðu á sólarorkunni einni saman. Forkólfurin Lesa meira
Þann 8. apríl 1960 hóf mannkynið að hlusta eftir ummerkjum um vitsmunaverur annars staðar í geimnum, þegar ungur stjörnufræðingur, Frank Drake, beindi útvarpsbylgjusjónauka sínum að stjörnunni Tau Ceti. Merkin voru prentuð út á pappírsstrimil og Drake sat lengi og fylgdist með hvort skrifnálin tæki skyndilegan kipp. En ekkert gerðist og nokkrum tímum síðar hvarf stjarnan Lesa meira
Motorola setur nú Droid á markað. Þetta er sími með snertiskjá og Google-stýrikerfinu Android. Örgjörvinn er öflugur, minnið ríflegt og síminn mikilvæg viðbót við vöruúrval þessa stórfyrirtækis. Lesa meira
Alllengi hefur verið hægt að koma rafrásum fyrir í t.d. fötum. Hjá Xerox hafa menn þróað frumgerð sem prentar með silfurbleki og þar með má framkalla rafræna áletrun á nánast hverju sem er, allt frá nærbuxum til umbúða. Lesa meira
Bráðum kemur Volkswagen L1, sem fer 100 km á 1 lítra af dísilolíu. Straumlínulögun og ný efni gera bílinn vistvænni, en hann nær þó 150 km hraða með dísilblendingsvél – og þarf aðeins 14,3 sek. til að ná 100 km hraða. Lesa meira
Ný uppfinning, kölluð „Gyrowheel“ gæti nú gjörbylt því hvernig börn læra að hjóla. Í stað stuðningshjólanna sem ekki kenna börnunum almennilega að halda jafnvægi, getur þetta nýja hjól kennt þeim það smátt og smátt. Það er svonefndur snúður eða „gýróskóp“ sem heldur jafnvæginu. Þetta er skífa sem snýst á miklum hraða inni í framhjólinu. Hún er kn Lesa meira
Fyrirtækið Dyson, hið sama og sendi frá sér pokalausu ryksuguna, kemur nú aftur með uppfinningu sem má teljast ættuð af landamærum veruleika og vísindaskáldskapar. „Air multiplier“ kallast áhaldið og markar ákveðin tímamót í loftræstingu. Loftið er sogað inn um raufar í standinum og því blásið út við barm hringsins. Loftþrýstingurinn sem skapast er alveg samb Lesa meira
Sjálflýsandi nanóeindir sem berast inn í heilann með blóðrásinni munu bæði auðvelda læknum að skera burtu heilaæxli og auka líkurnar á að ekkert verði eftir af því. Það eru vísindamenn við Washington-háskóla undir forystu Minqins Zhang prófessors sem hafa þróað hinar sjálflýsandi nanóeindir. Eindirnar líma sig við æxlið og lýsa það upp, þannig að það Lesa meira
U3-X heitir nýtt einhjól sem þróað hefur verið hjá Honda. Hjólið sjálft er samsett úr mörgum smærri hjólum og fyrir bragðið verður stjórn hjólsins auðveldari, en hjólinu er einfaldlega stýrt með hreyfingum líkamans. Þetta hátæknihjól vegur tæp 10 kg og fer hægt yfir eða um 6 km/klst. Lesa meira