Enginn vafi leikur á að ís er að finna á Mars. Stjörnufræðingar geta beinlínis séð hvítan ísinn á pólunum þar sem hann liggur í margra metra lagi. En nú hefur geimkanninn Mars Reconnaissance Orbiter (MRO) einnig fundið ís nær miðbaug Mars á breiddargráðu sem hér á jörðu samsvarar suðurhluta Evrópu. Ísinn liggur mörg hundruð metra undir yfirborðinu á svæðinu Deuteromilus Mensai sem er á 42,4° norðlægrar breiddar á afar jarðfræðilega áhugaverðu svæði. Þar liggja mörkin milli gamals landslags þöktu gígum og flatri láglendri sléttu Vastitas Borealis, sem kann að hafa verið þakið hafi fyrir meira en 2 milljörðum ára. Landslagið þarna er alsett stökum björgum, flötum sléttum og giljum. Utanfrá er fátt sérstakt að sjá Lesa meira
Ástæða þess að sumar stjörnuþokur eru spírallaga er sú að þær snúast. Hvernig þessi snúningur hefur orðið til, vitum við ekki, en það er þekkt í eðlisfræði að gasmassi sem snýst verður skífulaga þegar hann þéttist. Í spíralþoku er mest af ryki og gasi samankomið í tiltölulega þunnri skífu. Myndun nýrra stjarna á sér stað í skífunni og spíralarmarnir e Lesa meira
Þegar fyrsta stjarnan á ofurhraða uppgötvaðist árið 2003 vakti fundurinn furðu meðal stjörnufræðinga. En hann ætti eiginlega ekki að hafa gert það, því þegar 20 árum áður var sagt fyrir um slíkar stjörnur af stjörnufræðingnum Jack Hills við Los Alamos National Laboratory í BNA. Hann hafði reiknað út að fari tvístirni of nærri svartholi geti gagnvirkur aðdráttur Lesa meira
Á Mars eru ekki sams konar segulpólar og hér á jörð. Þar er aðeins mjög veikburða segulsvið og allt öðruvísi upp byggt. Segulsvið jarðar á upptök sín á miklu dýpi og að því leyti má líkja iðrum hnattarins við rafal. Þetta er tvípólasvið, sem sagt segulsvið þar sem báðir pólarnir eru skýrt afmarkaðir. Mögulegt er að endur fyrir löngu hafi sams konar segu Lesa meira
Hjá NASA fylgja menn einni meginreglu við leit að lífi úti í geimnum: Eltum vatnið. Og til þess eru fullgildar ástæður. Allar lífverur sem fundist hafa á jörðinni þurfa nefnilega á vatni að halda til að lifa. Vissulega eru til lífverur sem þurfa aðeins lítið vatn, en engin lífvera hefur uppgötvast sem kemst af alveg án vatns. Allt líf sem við þekkjum byggist á ein Lesa meira
Fyrir 3,4 milljörðum ára rann vatn eftir þessum 48 km langa farvegi á Mars. Vatnið bar fram set sem myndað hefur stórt óshólmasvæði og þetta eykur nú líkurnar á að finna líf á reikistjörnunni, segja vísindamenn hjá Colorado-háskóla í Bandaríkjunum. Á óshólmasvæðum grefst kolefni og önnur ummerki lífs fljótt niður og hér er því upplagt að leita eftir ummerk Lesa meira
Kenning 1 - Miklihvellur með útþenslu Allt varð til af engu Alheimur er 13,7 milljarða ára gamall og á undan honum var hvorki til rúm né tími. Hann fæddist úr ekkertinu og var óskiljanlega lítill í upphafi en hefur þanist út síðan þá. Miklihvellur var ekki skyndileg sprenging í tómarúmi heldur útþensla á sjálfu rúminu. Við fyrstu örskjótu útþensluna, sem kall Lesa meira
Hópur bandarískra og franskra stjörnufræðinga hefur nú alveg nýlega uppgötvað þrjár splunkunýjar stjörnur mjög nálægt miðju Vetrarbrautarinnar, sem sagt mjög ungar sólir. Aldurinn er talinn vera um ein milljón ár, en til samanburðar er sólin okkar um 4,6 milljarða ára og telst venjuleg, miðaldra stjarna, sem er nálægt því að vera hálfnuð með líftíma sinn. Lesa meira
Stjörnufræði Venus er stjörnufræðingum að mörgu leyti mikil ráðgáta. Auk þess sem þar ríkja gríðarleg gróðurhúsaáhrif, eru loftsteinagígar mun færri en vera ætti, plánetan snýst mjög hægt um sjálfa sig og í öfuga átt við allar aðrar reikistjörnur í sólkerfinu. Nú hefur enski vísindamaðurinn John Huw Davies þó sett fram kenningu sem gæti skýrt mikið a Lesa meira
Loftsteinarnir eru það efni sem gekk af þegar sólkerfið myndaðist fyrir 4,5 milljörðum ára. Stærð þeirra margra mælist vissulega í kílómetrum og þeir skipta tugum þúsunda, en ef við ímyndum okkur að þeir rynnu allir saman í eina plánetu, yrði hún þó afar smá. Samanlagður massi þessara loftsteina er nefnilega minni en tunglsins. Loftsteinarnir eiga þess ekki held Lesa meira
Stjörnufræði Hinir grænu skógar jarðar gætu verið einsdæmi í alheiminum. Þetta sýnir nýtt rannsóknarverkefni á vegum Goddard-geimrannsóknastöðvarinnar sem rekin er af NASA. Á grundvelli rannsókna á plöntum og bakteríum hér á jörð hafa líffræðingar, efnafræðingar og stjörnufræðingar sett saman reiknilíkön til að sýna plöntulíf á framandi reikistjörnum. Þ Lesa meira