Fylgstu með okkur á Twitter Sjáumst á FaceBook Gerast áskrifandi

Þróun lífsins

Nýjasta greinin
Leyndardómar regnskóganna

Langflestar af milljónum tegunda jarðar lifa í hitabeltinu. Ekki er vitað hvers vegna úir og grúir af svo miklu meira lífi þar en annars staðar á hnettinum, en líffræðingar hyggjast finna svarið. Í því augnamiði rannsaka þau nú tré í 40 af skógum hnattarins.

Það má ferðast heila 2.000 km frá Venesúela til suðurhluta Perú án þess að fara yfir einn einasta veg. Hálfa vegu á þessu einstaka svæði er að finna þjóðgarðinn Yasuní í Ekvador, einn af markverðustu stöðum heims. Árið 2010, sem SÞ tileinkuðu líffræðilegum fjölbreytileika, var varla hafið þegar stórt alþjóðlegt rannsóknarteymi afhjúpaði að Yasuní er að líkindum tegundaríkasti staður jarðar. Þar er að finna mestan tegundafjölda fugla, skriðdýra, froskdýra og leðurblaka – og meira en 100.000 skordýrategundir á einum hektara er það mesta sem fyrirfinnst hjá einum hópi dýra nokkurs staðar á jörðu. Þessi ótrúlegi tegundafjöldi í hitabeltinu er ein af helstu ráðgátum líffræðinga, sem þeir hafa leitast við að Lesa meira

Greinalisti

Af hverju lýsa augu dýra í myrkri?

Dýr sem eru á ferli á nóttunni þurfa að nýta takmarkað ljós næturinnar eins vel og unnt er. Af þessum sökum er sérstakt frumulag í augum þeirra, sem endurkastar ljósi og eykur ljósnæmi augnanna. Þetta frumulag er aftan á augasteininum og virkar þar sem nokkurs konar spegill sem varpar ljósinu aftur í gegnum augað sem þannig getur nýtt sér þetta ljós öðru sinni. Það Lesa meira

Maurar, býflugur og geitungar lifa í lögregluríki

Á yfirborðinu líkist mauraþúfa vissulega – alveg eins og geitungabú og býkúpur – hinu fullkomna samfélagi. Stór og mikil drottningin framleiðir í sífellu nýja samfélagsþegna sem halda undir eins til verkefna sinna af mikilli eljusemi. Einn fyrir alla og allir fyrir einn til hagsbóta fyrir samfélagið. Stundum hriktir í stoðunum á þessu fyrirmyndarsamfélagi. Vissulega er Lesa meira

Hvaða dýr er ljótasta skepna jarðarinnar?

Það segir reyndar sína sögu að þið skulið ekki geta komið ykkur saman. Það er ekkert auðveldara að mæla ljótleika en fegurð og því er ekki unnt að gefa neitt ákveðið svar við þessari spurningu. Flest fólk mun þó sammála um að sumar dýrategundir séu talsvert ljótari útlits en aðrar. Sumar leðurblökutegundir gætu hugsanlega gert kröfu til titilsins, enda hafa Lesa meira

GREIN 41 - 43 AF 43 GREINUM SÍÐA:   1 2 3 4 5
Áhugaverðar greinar
Þemagreinar

150 ára barátta við Everest

Manninn hefur lengið langað til að stíga á topp hæsta fjalls heims. Leiðin er hin lengsta og mannskæðasta sem menn hafa tekist á við. Hún hefst með mælingum Breta á miðri 19. öld en það er ekki fyrr en upp úr 1920 sem þeir eru reiðubúnir að reyna við tindinn í fyrsta sinn.

Lifandi Vísindi birti fjórar stórar greinar um merkustu leiðangrana á toppinn: Þann fyrsta, sem því miður misttókst, þann sem tókst, þegar Edmund Hillary sté á tindinn, þann sem Reinhold Messner fór einsamall og svo um árið 1996, sem var þakið slysum.

Everest #tab1
Hnattrænar #tab2
Apollo #tab3
Auglýsing
ELÍSA GUDRÚN EHF. - Útgáfufélag Lifandi Vísinda
  • Klapparstígur 25
  • 101 Reykjavík
  • Sími: 570-8300
  • Opnunartími: 9 - 12 alla virka daga
  • lifandi@visindi.is
Höfundarréttur: isProject ehf. © 2010. Allur réttur áskilinn.