Það sem menn álitu fyrst að væri tilviljanakennd beinahrúga á eyjunni Akab, um 50 km norður af Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, reynist nú hreint ekki vera nein tilviljun. Beinin eru öll úr sömu tegund sækúa og þeim hefur verið raðað í ákveðið mynstur af ýtrustu nákvæmni. Mismunandi gerðir beina hafa verið lagðar í ákveðin lög og hauskúpunum komið þannig fyrir að þær vísa til austurs. Lesa meira
Heilagur Nikulás var biskup í Myra í Býsans, þar sem nú er Tyrkland. Ekki er nákvæmlega vitað hvenær hann fæddist en dánardægur hans er haldið hátíðlegt þann 6. desember. Nikulás þessi dó árið 343 og varð síðar verndardýrlingur barna, kaupmanna og sæfarenda. Hann er nú í dýrlingatölu og dýrkaður bæði í löndum rétttrúnaðarkirkjunnar og hinnar kaþólsku, m.a Lesa meira
„Þegar ég var í þann veginn að yfirgefa Luxor, sendi Mohammed gamli Mohasseb mér boð um að hann vildi sýna mér eitthvað. Eftir talsvert þras og leynimakk sýndi hann mér á endanum undursamlega litskreytta múmíukistu.“ Þetta skrifaði bandaríski fornleifafræðingurinn James Henry Breasted í bréfi til konu sinnar þann 25. janúar 1920. Honum tókst að prútta verðið ni Lesa meira
Taktu lófafylli af smánöglum, hjartalaga leðurpjötlu, hárlokk, 8 beygða látúnsnagla, dálítið af naflaló og tíu afklipptar neglur og settu þetta allt saman í flösku. Bættu þvagi við, innsiglaðu flöskuna og grafðu hana fyrir framan aðaldyrnar. Þetta var uppskriftin að því að hræða nornir burtu í Englandi á 17. öld. Galdrafárið var þá í hámarki og óttinn við Lesa meira
Klofbótin þótti hátíska meðal herramanna á miðöldum. Þetta var klæðispungur, sem huldi kynfæri karla. Klofbætur voru af margvíslegum gerðum. Sumar voru sívalar, en aðrar sem belgir, oft útsaumaðar og festar við buxurnar með snæri, slaufum eða hnöppum. Það má helst líkja þeim við pungbindi íþróttamanna nú á dögum. Klofbótin var lausn á vanda nokkrum sem Lesa meira
Í janúar 897 lét Stefán VI. páfi grafa upp lík fyrirrennara síns, Formosusar páfa, og stilla því í sæti sakbornings í einhverjum fáránlegustu réttarhöldum sögunnar. Líkið sat í hásæti meðan Stefán VI. las yfir því ákærur sínar. Einn af þjónum kirkjunnar annaðist málsvörn hins látna, sem að lokum var dæmdur sekur um að hafa rænt páfatitlinum af fyrirrennara Lesa meira
Pantheon hefur verið eins konar vörumerki Rómar allar götu síðan þessari 43 metra háu byggingu var lokið árið 128 e.Kr. En þetta hátt í 2.000 ára gamla musteri varðveitir sérstakan leyndardóm að áliti Roberts Hannah, fornleifafræðings hjá Otago-háskóla. Hannah telur musterið ekki aðeins hafa verið reist guðunum til dýrðar – Pantheon merkir „allir guðir“ – Lesa meira
Í tengslum við byggingu nýrrar lífgasverksmiðju í Þýskalandi kom 2.800 ára gamall gullhringur upp úr jörðinni. Hringurinn er svonefndur stallahringur og fornleifafræðingurinn Cornelius Hornig telur að hann hafi verið notaður af goðum (prestum) bronsaldarsamfélagsins þegar mikilvægir samningar voru gerðir. Vísindamennirnir telja að goðinn hafi lagt hringinn fram við ath Lesa meira
Breski fornleifafræðingurinn Jacqui Wood kærir sig ekki um að túlka óútskýranlega hluti sem hún finnur með því að þeir eigi rætur að rekja til trúarathafna. Þegar hún svo rakst á margar grafnar holur með dularfullu innihaldi í 8.500 ára gamalli byggð í Cornwall varð hún hins vegar að játa að dulræn öfl lægju að baki. Fyrst í stað var álitið að ho Lesa meira
Þekking manna á norrænni goðafræði kemur fyrst og fremst úr Eddunum tveimur, Eddukvæðum og Snorra-Eddu, þar sem Snorri Sturluson skrifaði m.a. sagnir af goðunum. Höfundar kvæðanna í eldri Eddunni eru óþekktir, en í þessari bók er bæði að finna goðakvæði og hetjukvæði. Þekktust goðakvæðanna eru Hávamál og Völuspá þar sem segir af sköpun heimsins, endalokum Lesa meira
Þeir sitja í kyrrð og ró og biðja í daufri lýsingunni í kirkjunni. Ef við virðum fyrir okkur umhverfið er engu líkara en að háar steinsúlurnar, litríkar mósaíkmyndirnar og gylltir róðukrossarnir gefi til kynna guðdómlega nærveru. Annars staðar í heiminum eru það gullin hof og moskur sem ramma tilbeiðsluna inn á stórbrotinn hátt og engin þörf er fyrir að ferðast t Lesa meira