Vísindamenn hafa hermt eftir gripi í fótum gekkóeðlurnar.
Teymi verkfræðinga við Stanford University í BNA hefur hannað fjórfætt vélmenni sem getur gengið lóðrétt upp glerrúðu. Vélmennið er nefnt Stickybot eftir getu þess til að líma sig fast við slétt yfirborð. Vísindamennirnir rannsökuðu fyrst fætur á gekkóeðlum sem hafa einstaka getu til að klifra upp slétt yfirborð. Fæturnir eru alsettir milljónum örsmárra flipa er líkjast hárum. Endar þeirra eru floskenndir og með þeim geta þeir gripið í stakar sameindir á sléttu yfirborði. Þannig getur gekkóeðlan límt sig fasta á yfirborð án þess að styðjast við sogskálar eða límkenndan vökva. Næsta skref verkfræðinganna var að útbúa gúmmíefni með sömu gerð yfirborðs eins og á fótum gekkóeðlunnar. Þetta gúmmíefni var fe Lesa meira
Einhver furðulegasta hugmynd allra tíma hlýtur að vera þessi uppfinning Frakkans Charles Wulffs frá 1887. Ernir, gammar eða kondórar áttu að knýja þennan loftbelg. Sá sem var niðri í körfunni átti að kalla skipanir sínar upp í gegnum rör til stýrimannsins sem aftur sneri hjóli, sem fuglarnir voru festir við með ólum, og beina flugi þeirra þannig í rétta stefnu. Í flj Lesa meira
Boltinn sem notaður var á HM í Suður-Afríku var sá hnöttóttasti sem nokkru sinni hefur verið framleiddur. Þetta fullyrða menn hjá Adidas sem framleiðir opinbera HM-boltann, en hann kallast Jabulani, sem á máli Zúlú-manna merkir „að fagna“. Boltinn er gerður úr ræmum sem saman mynda fullkomna hnattlögun og þannig hefur tekist að skapa enn hnöttóttari bolta en áður. Lesa meira
Gervihönd sem bæði hefur tilfinningar og sýnir viðbrögð eins og eðlileg hönd. Þessari framtíðardraumsýn hafa vídindamenn hjá háskólasjúkrahúsinu Campus Bio-Medico í Róm og þýsku stofnuninni Fraunhofer-Gesellschaft komist stóru skrefi nær. Höndin gerir notandanum kleift að finna fyrir hlutum og yfirborði sem hann snertir og hefur skilað góðum árangri í prófun hjá Lesa meira
Vísindamenn hjá bílaframleiðandanum Nissan hafa þróað nýja tækni til að koma í veg fyrir árekstra í umferð og hugmyndin er sótt í hreyfingamynstur í fiskitorfu. Í tilraunum sínum nota vísindamennirnir hóp þríhjóla vitvéla, sem þeir kalla Eporo. Hvert tæki notar innbyggðan leysi til að greina fjarlægð og komast hjá árekstri. Vitvélarnar hegða sér svipað og fisk Lesa meira
Fílskýrin Topsy var í gær tekin af lífi með rafstraumi fyrir framan 1.500 áhorfendur. Eftir að Edison gaf merki, var 6.600 volta riðstraumi hleypt í gegnum Topsy og hún féll samstundis til jarðar með miklum skelli. Kvikmyndarar Edisons festu atburðinn á filmu. Topsy hefur á síðustu árum banað þremur gæslumönnum, þar af einum sem ölvaður reyndi að gefa henni logandi s Lesa meira
Árið 1888 smíðaði uppfinningamaðurinn Harold Somers litla, sakleysislega öskju sem var flugum lífshættuleg. Gerviblómin gáfu frá sér sætan ilm en voru í rauninni full af eiturvökva. Þessi askja fékkst í verslunum í meira en 40 ár. Lesa meira
Árið 1969 hannaði Austur-Þjóðverjinn Karl Peglau gangbrautarljósmerki sem kallast „Das Amlelmännchen“ og naut strax vinsælda, einkum meðal barna. Eftir að múrinn féll átti að skipta þessum ljósum út, en það mætti mikilli andstöðu. Fyrir bragðið eru ljósin enn notuð í Austu-Berlín og ein af sárafáum táknmyndum hins gamla Austur-Þýskalands sem enn lifa. Lesa meira
Okkar eigin heimur í þrívídd Milljónir af þrívíddarsjónvarpstækjum eru á leið heim í stofur fólks Við kippumst við þegar lífshættuleg risaeðlan stekkur inn í stofu til okkar. Með því að ýta á takka er þó hægt að stöðva risaeðluna í miðju stökki og fara fram og sækja meira kaffi. Óhætt er að fara að koma sér vel fyrir í hægindastólnum, því þrívíd Lesa meira
Ný þrívíddartækni mun á næstunni gera bæði auðveldara og fljótlegra að smíða gervitennur sem passa nákvæmlega rétt, segja vísindamenn við þýsku Fraunhaufer-stofnunina í Jena. Nú er smíði gervitanna mikil þolinmæðisvinna. Til þess þarf að gera bitþrykk af kjálkunum og síðan bæði gifs- og vaxafsteypu af tönnunum sem svo þarf að prófa í munni sjúklingsins Lesa meira
Efnafræðingar við Ríkisháskólann í Oregon hafa nú fyrir tilviljun skapað nýtt, blátt litarefni. Þetta getur komið að góðu haldi, því góð, ódýr og eitrunarlaus blá litarefni eru fáséð. Í tilraun þar sem manganoxíði, sem er svart að lit, var blandað við önnur efni og blandan svo hituð, tók ein blandan á sig fagurbláan lit vegna myndunar sérstakra kristalla. Lesa meira