Fylgstu með okkur á Twitter Sjáumst á FaceBook Gerast áskrifandi

Uppfinningar

Nýjasta greinin
Gekkó-vélmenni getur klifrað upp rúður.

Vísindamenn hafa hermt eftir gripi í fótum gekkóeðlurnar.

Teymi verkfræðinga við Stanford University í BNA hefur hannað fjórfætt vélmenni sem getur gengið lóðrétt upp glerrúðu. Vélmennið er nefnt Stickybot eftir getu þess til að líma sig fast við slétt yfirborð. Vísindamennirnir rannsökuðu fyrst fætur á gekkóeðlum sem hafa einstaka getu til að klifra upp slétt yfirborð. Fæturnir eru alsettir milljónum örsmárra flipa er líkjast hárum. Endar þeirra eru floskenndir og með þeim geta þeir gripið í stakar sameindir á sléttu yfirborði. Þannig getur gekkóeðlan límt sig fasta á yfirborð án þess að styðjast við sogskálar eða límkenndan vökva. Næsta skref verkfræðinganna var að útbúa gúmmíefni með sömu gerð yfirborðs eins og á fótum gekkóeðlunnar. Þetta gúmmíefni var fe Lesa meira

Greinalisti

Hljóðlát og spaðalaus vifta

Fyrirtækið Dyson, hið sama og sendi frá sér pokalausu ryksuguna, kemur nú aftur með uppfinningu sem má teljast ættuð af landamærum veruleika og vísindaskáldskapar. „Air multiplier“ kallast áhaldið og markar ákveðin tímamót í loftræstingu. Loftið er sogað inn um raufar í standinum og því blásið út við barm hringsins. Loftþrýstingurinn sem skapast er alveg samb Lesa meira

Nanóeindir lýsa upp æxli í heila

Sjálflýsandi nanóeindir sem berast inn í heilann með blóðrásinni munu bæði auðvelda læknum að skera burtu heilaæxli og auka líkurnar á að ekkert verði eftir af því. Það eru vísindamenn við Washington-háskóla undir forystu Minqins Zhang prófessors sem hafa þróað hinar sjálflýsandi nanóeindir. Eindirnar líma sig við æxlið og lýsa það upp, þannig að það Lesa meira

Stýrt með líkamanum

U3-X heitir nýtt einhjól sem þróað hefur verið hjá Honda. Hjólið sjálft er samsett úr mörgum smærri hjólum og fyrir bragðið verður stjórn hjólsins auðveldari, en hjólinu er einfaldlega stýrt með hreyfingum líkamans. Þetta hátæknihjól vegur tæp 10 kg og fer hægt yfir eða um 6 km/klst. Lesa meira

Rafmagnslífstykkið styrkir

Í lok 19. aldar er allt sem tengist rafmagni örugg söluvara. Glóðarpera Edisons fer nú sigurför um heiminn og fram koma óteljandi rafmagnstæki sem sögð eru gera kraftaverk, m.a. rafhlöðudrifið lífstykki sem samkvæmt auglýsingu frá 1891 styrkir innri líffæri og læknar gigt, taugasársauka og harðlífi. Að auki gerir lífstykkið „jafnvel klunnalegasta líkamsvöxt yndisfagr Lesa meira

Pinnar til ákvörðunar

Síðast á miðöldum notuðu sjófarendur gataða tréplötu og 8 pinna til staðarákvörðunar. Á hálftíma fresti var pinni settur í gat í samræmi við stefnuna og annar í samræmi við hraðann. Á fjögurra tíma fresti færði skipstjórinn niðurstöðurnar inn í skipsdagbókina. Lesa meira

Gaddavír breytti sögunni

Árið 1874 gerði bóndinn Joseph F. Glidden sér gaddavír með því að vefja stuttum vírbútum um vírstreng. Þar sem skortur var á timbri sló gaddavírinn strax í gegn. Nú var hægt að girða örugglega af stór svæði og þar með halda milljónum nautgripa um kyrrt. Gaddavírinn hafði svo mikil áhrif í sögu Bandaríkjanna að margir vilja líka uppfinningunni við transistorinn Lesa meira

Franskur læknir er hetja hermanna

Þeir eru niðurdregnir, hermenn Napóleons sem þegar þetta er skrifað, eru á leið heim eftir misheppnaða innrás í Rússland. En á stund ósigursins leggja hermennirnir allir sem einn traust sitt á yfirlækninn Dominique Jean Larrey. Læknirinn hefur bryddað upp á fjölmörgum nýjungum og er stundum nefndur „forsjón hermannanna“. Hann hefur verið óþreytandi við að skipuleggj Lesa meira

Viðbót við heilann

Gefum okkur að þú villist í framandi stórborg. Þú stendur innan um þvögu flautandi leigubíla og blikkandi auglýsingaskilta og reynir að koma auga á götuskilti eða byggingu sem þú kannast við. Þá tekur þú upp símann, kveikir á myndavélinni og heldur símanum fyrir framan þig, þannig að þú horfir á borgina „gegnum“ símann. Þú kemur nú ekki eingöngu auga á umf Lesa meira

Sjálfstýringin tekur völdin

Þegar miklir skógareldar herja á Kaliforníu senda bandarísk yfirvöld ómannaðar vöktunarflugvélar á loft til að fylgjast með og kortleggja útbreiðslu eldanna. Í suðurhluta Bandaríkjanna, við landamærin að Mexíkó, notar landamæralögreglan ómannaðar flugvélar í leit að ólöglegum innflytjendum, eiturlyfjasmyglurum og mögulegum hryðjuverkamönnum. Þegar fellibyljir ri Lesa meira

Hátíðnihljóð í uppvaskið

Ný, frönsk hönnun gæti orðið valkostur við þá vatnssvelgi sem uppþvottavélarnar okkar eru. Tæknin hefur reyndar lengi verið notuð í gullsmíði en gæti nú haldið innreið sína í eldhús almennings. Þessi uppþvottavél notar hátíðnihljóð til að mynda smásæjar bólur sem fjarlægja hverja örðu af matarleifum af diskunum. Fræðiheitið á fyrirbrigðinu er „cavit Lesa meira

GREIN 41 - 50 AF 141 GREINUM SÍÐA:   1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14
Áhugaverðar greinar
Þemagreinar

150 ára barátta við Everest

Manninn hefur lengið langað til að stíga á topp hæsta fjalls heims. Leiðin er hin lengsta og mannskæðasta sem menn hafa tekist á við. Hún hefst með mælingum Breta á miðri 19. öld en það er ekki fyrr en upp úr 1920 sem þeir eru reiðubúnir að reyna við tindinn í fyrsta sinn.

Lifandi Vísindi birti fjórar stórar greinar um merkustu leiðangrana á toppinn: Þann fyrsta, sem því miður misttókst, þann sem tókst, þegar Edmund Hillary sté á tindinn, þann sem Reinhold Messner fór einsamall og svo um árið 1996, sem var þakið slysum.

Everest #tab1
Hnattrænar #tab2
Apollo #tab3
Auglýsing
ELÍSA GUDRÚN EHF. - Útgáfufélag Lifandi Vísinda
  • Klapparstígur 25
  • 101 Reykjavík
  • Sími: 570-8300
  • Opnunartími: 9 - 12 alla virka daga
  • lifandi@visindi.is
Höfundarréttur: isProject ehf. © 2010. Allur réttur áskilinn.