Fylgstu með okkur á Twitter Sjáumst á FaceBook Gerast áskrifandi

Uppfinningar

Nýjasta greinin
Gekkó-vélmenni getur klifrað upp rúður.

Vísindamenn hafa hermt eftir gripi í fótum gekkóeðlurnar.

Teymi verkfræðinga við Stanford University í BNA hefur hannað fjórfætt vélmenni sem getur gengið lóðrétt upp glerrúðu. Vélmennið er nefnt Stickybot eftir getu þess til að líma sig fast við slétt yfirborð. Vísindamennirnir rannsökuðu fyrst fætur á gekkóeðlum sem hafa einstaka getu til að klifra upp slétt yfirborð. Fæturnir eru alsettir milljónum örsmárra flipa er líkjast hárum. Endar þeirra eru floskenndir og með þeim geta þeir gripið í stakar sameindir á sléttu yfirborði. Þannig getur gekkóeðlan límt sig fasta á yfirborð án þess að styðjast við sogskálar eða límkenndan vökva. Næsta skref verkfræðinganna var að útbúa gúmmíefni með sömu gerð yfirborðs eins og á fótum gekkóeðlunnar. Þetta gúmmíefni var fe Lesa meira

Greinalisti

50 metra há bauja rannsakar lífið í sjónum

50 metra há rannsóknastofa, í lögun eins og bauja, verður látin reka og rannsaka um leið heimshöfin án afláts allan sólarhringinn. Þetta er hugarfóstur franska flotaarkitektsins Jacques Rougerie og farartækið kallar hann SeaOrbiter. Af alls 50 metra hæð verða 30 metrar alltaf neðansjávar og þannig skapast miklir möguleikar til rannsókna á dýralífinu í sjónum. Auk fj Lesa meira

Ný steypa gerir við sig sjálf

Þegar við rispum okkur gerir húðin sjálf smám saman við skaðann. Alveg á sama hátt er nú ný gerð af sveigjanlegri steinsteypu fær um að gera við sig sjálf ef sprungur myndast. Þessi sjálflæknandi steypa er afrakstur 15 ára þróunarvinnu við Michigan-háskóla í Bandaríkjunum. Hefðbundin steinsteypa brotnar ef álagið verður of mikið, t.d. í jarðskjálfta, en sú n Lesa meira

Hraustur eins og svín

Þegar barnadauði var enn algengur, taldist það hraustleikamerki ef börn voru vel haldin, sem sagt helst akfeit. Lyfsalinn Edwin Grove nýtti sér þessa hugmynd þegar hann setti lyf sitt gegn malaríu á markað árið 1878: Grove‘s Chill Tonic. Auk kíníns voru sætuefni og sítrónusafi í drykknum og viðskiptavinir urðu strax yfir sig hrifnir. Drykkurinn bragðaðist betur en kínín Lesa meira

Frakki heiðraður fyrir vefnaðarvél

Napóleon keisari er yfir sig hrifinn af nýrri uppfinningu Josephs Marie Jacquard, sjálfþræðandi vefstól. Hans keisaralega tign hefur því ákveðið að uppfinningamanninum verði árlega greidd ákveðin upphæð allt til æviloka. Þessi eftirlaun koma til viðbótar allmörgum heiðursorðum og nafnbótum. Þetta eru viðbrögð keisarans eftir að hann hefur verið viðstaddur sýni Lesa meira

Líkja eftir berum tám

Afar sérkennilegir hlaupaskór frá Vibram eru lagaðir nákvæmlega að fætinum og sæta nú stöðugum endurbótum. Margar rannsóknir hafa sýnt að venjulegir hlaupaskór eiga þátt í sköddun fótanna. Mannskepnan er sem sé einfaldlega gerð til að hlaupa berfætt. Hjá fyrirtækinu eru menn því þeirrar skoðunar að hlaupaskór eigi að falla svo nákvæmlega að fætinum öllum ein Lesa meira

Rúllugangstétt til að auðvelda umferð

Á heimssýningunni í París árið 1900 voru kynntar til sögunnar tvær merkilegar nýjungar á sviði umferðartækni. Önnur var neðanjarðarlestin „Metro“, sem flutti farþega hratt og örugglega milli borgarhluta. Hitt var langt færiband sem flutti sýningargesti um hin stóru sýningarsvæði, alls um 3 km leið og fór á 8 km hraða. Lesa meira

Duftkaffið fékk ekki undirtektir

Það var svo snemma sem 1771 sem Englendingi einum tókst að framleiða kaffiduft sem leystist upp í vatninu án þess að skilja eftir sig neinn korg. Enginn reyndist þó kæra sig um slíkt skyndikaffi og það fékk japanski efnafræðingurinn Sartori Kato líka að reyna þegar hann fékk einkaleyfi á duftkaffi í Bandaríkjunum árið 1903. Það var ekki fyrr en hraði samfélagsins tó Lesa meira

Lest hélt jafnvægi á einum teini

Írsk-ástralski uppfinningamaðurinn Louis Brennan (1852-1932) var sannfærður um það árið 1903 að hann hefði fundið upp járnbraut framtíðarinnar. Hann fékk þá einkaleyfi á tæknilega mjög þróuðu kerfi sem gerði það að verkum að járnbrautarvagnar héldu jafnvægi á einum teini. Uppfinningin sló þó aldrei í gegn, því fólk þorði ekki að treysta á öryggi hennar. Lesa meira

Vökvakæld pera sparar straum og lýsir með glóð

Dagar glóðarperunnar eru taldir. Sparperur og ýmis konar LED-ljós taka við. En birtan frá þessum vistvænu ljósgjöfum þykir mörgum of kuldaleg. Þess vegna teflir Eternaleds-fyrirtækið nú fram LED-peru sem fyllt er með fljótandi paraffíni. Þessi olía skapar perunni glóð sem bæði gefur eðlilegri birtu og sparar rafmagn. Til að lýsa á við 25 watta glóðarperu þarf þess Lesa meira

Hús framtíðar

Plast er það efni sem hús framtíðarinnar verða byggð úr. Það telja verkfræðingar við Massachussetts Institute of Technology sem hafa nú sýnt tillögu sína á fjölskylduheimili árið 1986 í sýningu í Disneylandi í Kaliforníu, BNA. Hvern dag sækja um 10.000 manns „House of the Future“ heim sem endurspeglar væntingar til komandi tíma; húsgögn, stólar, borð, matar Lesa meira

GREIN 51 - 60 AF 141 GREINUM SÍÐA:   1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15
Áhugaverðar greinar
Þemagreinar

150 ára barátta við Everest

Manninn hefur lengið langað til að stíga á topp hæsta fjalls heims. Leiðin er hin lengsta og mannskæðasta sem menn hafa tekist á við. Hún hefst með mælingum Breta á miðri 19. öld en það er ekki fyrr en upp úr 1920 sem þeir eru reiðubúnir að reyna við tindinn í fyrsta sinn.

Lifandi Vísindi birti fjórar stórar greinar um merkustu leiðangrana á toppinn: Þann fyrsta, sem því miður misttókst, þann sem tókst, þegar Edmund Hillary sté á tindinn, þann sem Reinhold Messner fór einsamall og svo um árið 1996, sem var þakið slysum.

Everest #tab1
Hnattrænar #tab2
Apollo #tab3
Auglýsing
ELÍSA GUDRÚN EHF. - Útgáfufélag Lifandi Vísinda
  • Klapparstígur 25
  • 101 Reykjavík
  • Sími: 570-8300
  • Opnunartími: 9 - 12 alla virka daga
  • lifandi@visindi.is
Höfundarréttur: isProject ehf. © 2010. Allur réttur áskilinn.