Vísindamenn hafa hermt eftir gripi í fótum gekkóeðlurnar.
Teymi verkfræðinga við Stanford University í BNA hefur hannað fjórfætt vélmenni sem getur gengið lóðrétt upp glerrúðu. Vélmennið er nefnt Stickybot eftir getu þess til að líma sig fast við slétt yfirborð. Vísindamennirnir rannsökuðu fyrst fætur á gekkóeðlum sem hafa einstaka getu til að klifra upp slétt yfirborð. Fæturnir eru alsettir milljónum örsmárra flipa er líkjast hárum. Endar þeirra eru floskenndir og með þeim geta þeir gripið í stakar sameindir á sléttu yfirborði. Þannig getur gekkóeðlan límt sig fasta á yfirborð án þess að styðjast við sogskálar eða límkenndan vökva. Næsta skref verkfræðinganna var að útbúa gúmmíefni með sömu gerð yfirborðs eins og á fótum gekkóeðlunnar. Þetta gúmmíefni var fe Lesa meira
Fyrsti blindrabíllinn er strandvagn búinn leysitækjum sem mæla fjarlægðir í umhverfinu. Talgervill segir hinum blinda í hvaða átt hann eigi að stýra. Að auki er bílstjórinn í vesti sem upplýsir hann með titringi um hraða bílsins og ástand vegarins. Lesa meira
Meðan á kalda stríðinu stóð óskaði bandaríski flugherinn eftir sprengjuflugvél búinni kjarnakljúf. Orkan úr kjarnakljúfnum átti að geta haldið flauginni mun lengur á lofti að mati hershöfðingjanna. Skjótt kom í ljós að erfitt reyndist að uppfylla óskir þeirra. Milli 1948 og 1951 gerði U.S. Air Force tilraunir með kjarnakljúf sem gat framleitt orku fyrir flugvéla Lesa meira
Tímafrekir birgðaflutningar urðu til að Napóleón hershöfðingi hét 12.000 frönkum fyrir nýjan máta við að varðveita mat árið 1795. 14 árum síðar fann matvinnslumaðurinn Nicholas Appert upp á að innsigla mat í glerkrukku og hita hann upp. Tindósin fylgdi í kjölfarið 1810, en það var fyrst árið 1855 sem dósaopnari kom til sögunnar. Lesa meira
Orrustuflugmenn verða oft fyrir hröðun sem er 9 sinnum öflugri en þyngdaraflið. Þá er talað um álag sem nemur 9 g, sem getur reynst skaðlegt enda þrýstist blóðið niður í fætur og þannig frá heilanum. Það leiðir í fyrstu til að flugmaðurinn missir litaskyn eða fær rörsýn rétt eins og hann sjái umhverfið sitt í gegnum papparör. Langvarandi álag g-krafts getur le Lesa meira
Nýþróaðir sandalar munu héðan í frá auðvelda mönnum sem t.d. þurfa að læra að ganga aftur eftir sjúkdóm eða áföll. Forceshoe, eins og þeir nefnast, hafa innbyggða nema sem mæla þrýsting. Þannig veita þeir gagngera mynd af hvernig notandinn ber sig að við gang. Lesa meira
Rúbiksteningurinn er nú fáanlegur í rafrænni útgáfu. Í 26 smáteninga sem snerust á öxlum er nýja gerðin, „Rubik‘s TouchCube“ með sex LED-snertiskjái. Sérstakur skynjari fylgist með því hvað snýr upp og niður en sjö örflögur sjá um litina og snúningana. Nú er líka hægt að „hætta við“ fá ábendingu um næsta snúning og svo getur teningurinn leyst þrautin Lesa meira
Hjá örgjörvaframleiðandanum Intel hefur mönnum nú tekist að senda rafstraum frá iPod til hátalara án þess að nota rafleiðslur. Rafsegulmagn er notað til að senda strauminn beint í gegnum loftið – rafsegluspóla sendir frá sér straum upp á 1 watt á 7,6 megariðum og önnur spóla tekur við rafmagninu. Áður hafði þeim Intel-mönnum tekist að fá 60 kerta peru til að lý Lesa meira
Vatnadoppa breiðir út blöð sín á kyrrum stöðuvötnum og er víða kölluð andagras. En nú segja vísindamenn hjá ríkisháskólanum í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum að þessi jurt sé alveg kjörin til að koma í staðinn fyrir maís og aðrar kornjurtir til framleiðslu á lífrænu eldsneyti. Í tilraunaskyni var plantan ræktuð í frárennsli frá svínabúi og reyndist þ Lesa meira
Með nýjum dempurum á að draga úr orkunotkun bíla um allt að 10%. Þegar demparinn þrýstist saman eða tognar á honum dælir hann vökva gegnum túrbínu sem aftur knýr rafal. Það eru stúdentar hjá MIT í Boston sem hafa þróað þessa dempara og þeir telja að uppfinningin muni einkum koma að góðu haldi í vörubílum. Lesa meira
Árið 1936 setti kjörbúðareigandinn Sylvan Goldman hjól undir umbyggðan fellistól með tveimur körfum. En svo brá við að viðskiptvinirnir tóku á sig krók framhjá nýju vögnunum. Konurnar sögðust hafa fengið nóg af að ýta barnavögnum á undan sér og karlmenn óttuðust að sýnast ekki nógu sterkir. Það var ekki fyrr en Goldman réð þykjustuviðskiptavini til að nota Lesa meira