Lifandi Vísindi
 
Prenta
26.04.2007     Hvaða dýr fjölga sér hraðast?
Blaðlýs fjölga sér ört, enda fæða þær lifandi unga (örin) sem fæðast þungaðir.
Blaðlýs fjölga sér ört, enda fæða þær lifandi unga (örin) sem fæðast þungaðir.
Algengt er að heyra um mikla fjölgunarhæfni kanína eða t.d. músa, en meistarar dýraríkisins í þessu efni eru þó blaðlýs. Ævihringur þessara skordýra er að vísu nokkuð misjafn eftir tegundum, en þar eð þær fjölga sér yfirleitt kynlaust og fæða þar að auki lifandi unga, fjölgar stofninum mjög hratt. Blaðlús eignast yfirleitt unga tíunda hvern dag og þar eð ungu
blaðlýsnar þurfa ekki að viðhafa neina mökun heldur fæðast þungaðar í ofanálag, eignast þær fyrsta ungahópinn sjálfar tíu dögum eftir fæðingu.
Og við allra bestu aðstæður getur fjölgunin orðið enn hraðar. Heimsmetið á kállúsin sem fræðilega séð getur eignast 822 milljónir tonna af afkomendum á einu ári. Það er nálægt því að vera þrefaldur þungi alls mannkyns. Til allrar lukku er dánartíðni blaðlúsa einnig mjög há, enda óvinir í náttúrunni fjölmargir. Þótt fjölgunin sé ör, verða vindurinn og önnur
veðurskilyrði, að ógleymdum rándýrunum, flestum blaðlúsum fljótlega að bana.

Leita í greinasafni
Lesendur álíta...

Guð er
Ekki til
Algóður
Almáttugur
Hinn mikli andi
Eins og lýst er í Bilíunni
Jesú Kristur
Veit ekki
Allt þetta og miklu meira
 

Spurningin...
Eru litirnir í geimmyndum ekta?
Á síðari árum hafa verið birta æ fleiri litskrúðugar myndir utan úr geimnum. En eru það eðlilegir eða falskir litir sem við fáum að sjá?